Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Goðanes 1b eignarhluti 102
* Til sölu eða leigu * laus til afhendingar við kaupsamning *Nýlegt (2024) geymsluhúsnæði á tveimur hæðum við Goðanes 1b á Akureyri - 143,4 m² að stærð
Húsið er límtréshús og klætt með steinullareiningum, bæði veggir og þak og skiptist í 8 eignarhluta.
Lóðin er leigulóð í eigu Akureyrarbæjar, 4.049,1 m² að stærð.
Neðri hæðin er skráð 73,7 m² að stærð - um 12 metrar á dýpt og um 5,9 metrar á breidd. Hæð upp í milliloft er um 3,3 metrar.
Efri hæðin er skráð 69,7 m² að stærð.Góður timbur stigi er á milli hæða. Snyrting er undir stiga á neðri hæðinni með upphengdu wc, handlaug og hvítum neðri skáp.
Efri hæðin skiptist í snyrtingu og opið rými með góðum gluggum til tveggja átta og hurð út á svalir. Vínyl parket er á gólfum og spónlögð kaffistofuinnrétting. Vönduð lýsing í loftum.
Annað- Sér mælar fyrir hita og rafmagn.
- Gólfhiti er á neðrihæð og ofnar á efrihæð.
- Rafdrifin innkeyrsluhurð með fjarstýringu.
- Tré-Ál gluggar og inngöngu hurðir.
- Vestur svalir, skráðar 4,5 m² að stærð skv. teikningum.
- Bílaplan er malbikað - snjóbræðslulögn er fyrir framan hvern eignarhluta ca 6*6 metrar.
-
Á bílaplani er sér merkt auka stæði fyrir hvern eignarhluta, um 30 m² hvert stæði.Verð eignar er kr. 59.900.000.- auk þess hvílir á eigninni vsk-kvöð um kr. 4.000.000.- Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.