DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:27. okt. kl 17:45-18:15
Skráð 22. okt. 2026

Drápuhlíð 10

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
98.7 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
77.400.000 kr.
Fermetraverð
784.195 kr./m2
Fasteignamat
74.550.000 kr.
Brunabótamat
48.850.000 kr.
Mynd af Ragnar Kristján Guðmundsson
Ragnar Kristján Guðmundsson
Fasteignasali
Byggt 1949
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2030384
Landnúmer
107085
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Raflagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Endurnýjað
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Sérafnotareitur á jarðhæð
Upphitun
Ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Samkvæmt húsfélagsyfirlýsingu dagsett 20.10.2026
Rætt hefur verið um að framkvæma þakskipti og tengja kaldavatnslagnir.
Ath. samkv. húsfélagsyfirlýsingu eru engar samþykktar framkvæmdir. 
Ragnar Guðmundsson S: 844-6516 löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Mikið endurnýjuð og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð með sérafnotareit í fjölbýlishúsi að Drápuhlíð 10 í Reykjavík. Eignin er skráð 98,7 fm. og skiptist í anddyri/hol, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús með borðkrók, borðstofu og stofu. Frá stofum er útgengt á sérafnotareit sem snýr til suðurs með útsýni í mjög snyrtilegan sameiginlegan garð. Sérgeymsla er undir stigarými húss. Sameiginlegt þvotta- og þurrkherbergi Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar fasteignasali í s: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

*** Samkvæmt seljanda hefur húsið fengið mikið viðhald og má nefna eftirfarandi framkvæmdir;

- 2016 Húsið steinað að utan.
- 2016 Gluggar íbúðar endurnýjaðir (eigandi íbúðar á þeim tíma kostaði þá framkvæmd).
- 2017 Garður tekinn í gegn.
- 2020 Endurnýjað dren.
- 2020 Steyptar tröppur fyrir sérafnotkunarreit eignar
- 2020 Skipt um túður á þaki.
- 2020 Sett upp ný ruslatunnugerði.
- 2020 Plan hellulagt og settur hiti í hluta af plani.
- 2022 Skolplagnir myndaðar og brotið upp (talið að lagnir hafi verið í lagi).
- 2022 Endurnýjað lagnagrind og neysluvatn.
- 2023 Endurnýjun á hluta miðstöðvarlögna í kjallara (settar utanáa liggjani lagnir).


Nánari lýsing:
Anddyri:
Gengið er inn um sameiginlegt anddyri með aðgengi að sameiginlegu þvottahúsi. 
Forstofa/Hol: Komið er inn í rúmgóða harðparketlagða forstofu eða hol sem tengir saman flest rými eignarinnar.
Eldhús: Falleg endurnýjuð hvít innrétting með góðu vinnuplássi og harðviðarplötu á borðum. Bakaraofn, stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél. Harðparket á gólfi.
Stofa/Borðstofa: Stórar og miklar stofur í opnu og björtu rými með nýlega endurnýjuðum gluggum og harðparketi á gólfi. Útgengt er á sérafnotareit sem snýr út í sameiginlegan garð.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott hjónaherbergi með góðum háum fjórföldum fataskápum og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi: Að undanskildu hjónaherbergi er annað svefnherbergi með harðparketi á gólfi. Áður en gengið er inn í herbergið tekur við fataherbergi.
Baðherbergi: Hvít innrétting með handlaug og neðri skápum. Innbyggðar hirslur í hluta veggjar. Upphengt salerni og flísalögð sturta með hertu gleri. Flísar gólf.
Garður: Stór og snyrtilegur sameiginlegur garður. Fallega hirtur og gróinn. Búið er að gróðursetja mikið af fallegum plöntum og trjám.
Sérgeymsla/þvottaherbergi: Sérgeymsla er staðsett undir stiga húss. Sameiginlegt þvotta- og þurrkherbergi með tengjum fyrir þvottavélar. Sameiginlegt rými fyrir hjóla og vagnageymslusvæði.

Um er að ræða fallega og vel skipulagða íbúð á mjög vinsælum stað í Reykjavík. Betri staðsetning á höfuðborgarsvæðinu er vandfundin. Góðar samgönguæðar tengja hverfið við alla staði borgarinnar og stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir. Einnig er göngufæri í leik- og grunnskóla og útivistarsvæðin Klambratún og Öskjuhlíð.
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar fasteignasali í s: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
11/09/202043.850.000 kr.45.500.000 kr.98.7 m2460.992 kr.Já
17/10/201629.900.000 kr.34.900.000 kr.98.7 m2353.596 kr.Já
07/11/201118.400.000 kr.17.900.000 kr.98.7 m2181.357 kr.Nei
17/08/200719.250.000 kr.24.350.000 kr.98.7 m2246.707 kr.Já
29/08/200617.560.000 kr.18.000.000 kr.98.7 m2182.370 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (44)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lindargata 37
Bílastæði
Hleðslustöð
Stæði í bílageymslu
Skoða eignina Lindargata 37
Lindargata 37
101 Reykjavík
95,3 m2
Fjölbýlishús
211
996 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Sigtún 35
Skoða eignina Sigtún 35
Sigtún 35
105 Reykjavík
91,4 m2
Fjölbýlishús
312
819 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Framnesvegur 61
Skoða eignina Framnesvegur 61
Framnesvegur 61
101 Reykjavík
116,1 m2
Fjölbýlishús
513
844 þ.kr./m2
98.000.000 kr.
Skoða eignina Fellsmúli 2 / 301
Hleðslustöð
Fellsmúli 2 / 301
108 Reykjavík
93,7 m2
Fjölbýlishús
312
714 þ.kr./m2
66.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin