Um er að ræða fasteignina Birkihlíð 4a, 845 Flúðir, nánar tiltekið, eign merkt 01-0101, fastanúmer 251-6816, og bílskúr merkt 01-0103, ásamt öllu því sem eigninni fylgir og fylgja ber að engu undanskyldu, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Birkihlíð 4 er fjöleignahús á tveimur hæðum sem stendur á lóðinni Birkihlíð 2-4. Birt stærð eignarinnar er 128 m2 sem skiptist í 91,6m2 íbúð og 36,4m2 bílskúr. Bílastæði framan við bílskúr tilheyrir íbúðinni.
Fasteignin er í byggingu og áætlaður afhendingartími er í apríl. Eignin verður afhent fullbúin með föstum innréttingum og tækjum sem og full frágenginni lóð.
Íbúðin er á 1. hæð. Bílastæði og aðkoma að húsi Birkihlíð 4 er í sameign íbúða 0101 og 0201. Votrými verða flísalögð, baðherbergi verða flísar á gólfi og veggjum, annars verður parket á gólfum. Bílaplan verður hellulagt, ekki upphitað. Sérafnotaréttur af lóð fylgir íbúðinni eins og hann er skilgreindur á grunnmynd af aðaluppdrætti eignarinnar, bls. 9
Sökklar eru steyptir og einangraðir að utan með 50mm. plasteinangrun. Gólfplata staðsteypt. Útveggir staðsteyptir, einangraðir að utan með 100mm steinullareinangrun og klæddir með paniliklæðningu á álundirkerfi. Timburþak. Gluggar og hurðir eru ál/timbur , svartir að lit. Gler í gluggum er tvöfalt K-einangrunargler. Tvöfalt samlímt öryggisgler í gólfsíðum gluggum/hurðum, sem og öllum gluggum og hurðum sem eru allt að 600mm frá gólfi. Allar útihurðir eru 900mm á breidd. Allar innihurðir eru 800mm að breidd. Fyrir nánari lýsingu er vísað til aðaluppdráttar eignarinnar, dags. 03.05.22 unnið af Jódís Ástu Gísladóttur, hjá Larsen Hönnun og Ráðgjöf.
Skipulagsgjald er ógreitt og skal greitt af kaupanda þegar það leggst á.
Nánari upplýsingar veitir Kristófer Ari Te Maiharoa Lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 6956134, tölvupóstur kristo@olafur.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 55.000 + vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.