Valborg fasteignasala kynnir 4ra herbergja 104,6 fm íbúð á efri hæð við Langholtsveg 165A, Reykjavík. Íbúðin er björt, vel skipulögð og mjög mikið endurnýjuð með sérinngangi og tvennum svölum. Eignin skiptist í stofu, eldhús, hol, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, forstofu, geymslu og sameign.Stofa/borðstofa/: Rúmgóð, steinn á gólfi, opið er inn í eldhús.
Eldhús: Hefur allt verið endurnýjað. Stór innrétting, vaskur, ofni í vinnuhæð, span helluborð og uppþvottavél.
Baðherbergi: Hefur allt verið endurnýjað, flísar á gólfi og veggjum við sturtu yfir baðkari, vegghengt salerni. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara með góðu skápaplássi.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, fataskápur og svalir sem snúa út í bakgarð.
Svefnherbergi 1: Inngengt úr forstofu, parket á gólfi og svalir.
Svefnherbergi 2: Með stein á gólfi.
Forstofa: Teppalagður stigi upp á hæð, fatahengi og lítið andyri. Úr andyri er gengið inn í
miðrými íbúðarinnar.
Geymsla: Sérgeymsla í kjallara. Í sameign er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla og þvottahús.
Búið er að stækka baðherbergið með því að sameina það við lítið herbergi á teikningu. Einnig var eldhús fært og er núna opið inn í stofu. Þriðja svefnherbergið er þar sem eldhúsið var. Forstofa hefur verið stækkuð og hurð færð.
Viðhald og viðgerðir að sögn seljanda;2024: Frárennsli í húsinu endurnýjað.
2022: Allt neysluvatn og frárennsli í búðinni að inntaki sett í nýjar lagnir.
2022: Ný gólfefni sett á alla íbúðina.
2022: Ný eldhúsinnrétting og heimilistæki.
2022: Baðherbergi endurnýjað, stækkað og flísalagt. Sett aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Skipt hefur verið um glugga að hluta og allt gler nema í vesturglugga í stofu. Nýtt járn sett á þak 2017-2018.
Stutt er í alla helstu þjónustu svo sem matvöruverslanir, apótek, skóla, leikskóla. Einnig er afar stutt í útivistarsvæði í Elliðaárdalnum og Laugardalnum. Góð staðsetning við stígakerfi og stofnæðar.Hafið samband og bókið skoðun. Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Steinþórsson Viðskiptafræðingur - löggiltur fasteignasali, í síma 896-5865, tölvupóstur alli@valborgfs.is.Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.