Lind Fasteignasala kynnir nýjar og glæsilegar íbúðir við Kársneshöfn. Íbúðirnar eru eingöngu sýndar í einkasýningum. Bókaðu skoðun hjá sölumönnum okkar.
Ómar Hvanndal - omar@fastlind.is / S. 832-3200
Lára Þyri Eggertsdóttir – lara@fastlind.is / 899-3335
Guðrún Antonsdóttir - gudrun@fastlind.is / 621-2020
Íbúð 505: Glæsileg útsýnisþakíbúð með tvennum svölum, einum til suðvesturs og öðrum til austurs. Íbúðin einkennist af björtum, opnum rýmum með aukinni lofthæð og fallegu flæði milli rýma.
Eignin skiptist í forstofu, rúmgott alrými með stofu, sjónvarpskrók, borðstofu og eldhús með eyju, góðu vinnuplássi og miklu skápaplássi. Stórir gluggar tryggja mikla birtu og stórbrotið útsýni. Úr alrými er útgengt á suðvestursvalir.
Íbúðin er búin rúmgóðri hjónasvítu með innangengu fata- og baðherbergi. Jafnframt er annað rúmgott svefnherbergi, baðherbergi og sérþvottahús innan íbúðar.
Auglýst verð miðaðst við að íbúðin afhendist tilbúin til innréttinga og hefur kaupandi þá kost á að haga hönnun og efnisvali eftir sínum stíl. Í boði er að fá íbúðina afhenta fullkláraða án megingólfefna. Verð miðað við slík skil er 200.000.000. Sé þess óskað geta kaupendur valið um hönnunarþema, Yl eða Stein. Nánari upplýsingar um endanleg skil fást hjá söluaðila.
Á Vesturbakka rísa 118 vandaðar íbúðir þar sem rík áhersla er lögð á fágaðan arkitektúr, tímalausa hönnun og nútímaþægindi. Íb’uðirnar eru fjölbreyttar og einkennast af vönduðu efnisvali og vel útfærðu skipulagi.
Vesturbakki stendur við Kársneshöfn, þar sem spennandi framtíðarsýn Kópavogsbæjar er að taka á sig mynd. Skipulag svæðisins gerir meðal annars ráð fyrir veitingastað og aðstöðu til sjósunds sem mun glæða höfnina lífi.
Fjölbreytt afþreyfing er í boði í frístundarými sem staðsett verður á 1. hæð við Vesrurbakka 21b og er opið sameiginlegt fyrir íbúa í húsinu. Þar verður vönduð líkamsræktaraðstaða, útisvæði með heitum- og köldum potti ásamt saunu. Þá verður golfhermir og aðstaða fyrir pílukast.
Næg bílastæði verða á lóðinni en 103 sérmerkt stæði eru í bílakjallara auk þess sem 58 bílastæði verða á lóð hússins.
Þægindi og góð innivist eru í fyrirrúmi og hönnun bygginganna, þar sem valin eru vönduð byggingarefni sem tryggja heilnæmt og nærandi umhverfi. Íbúðirnar útfærðar eftir tveimur hönnunarþemum sem nefnast Ylur og Steinn.
Í íbúðunum verða innréttingar frá Parka eða Voke III og heimilistækin frá Siemens en tækin frá þeim hafa þegar fest sig í sessi fyrir gæði og endingu. Það má nefna að helluborðið er með innbyggða viftu og hefur möguleika á þráðlausri fjarstýringu.
Í eldhúsi verða ýmist sambyggðir baksturs- og örbylgjuofn, frystir og vínkælir.
Þá verður hússtjórnunarkerfi, kallað free at home, þar sem íbúar geta stýrt meðal annars hitastigi, ljósum og gardínum í íbúðinni. Hver íbúð fær síðan til sín tæknimann til þess að stilla og læra á búnaðinn.
Allar íbúðir eru búnar sér loftskiptikerfi sem stuðlar að betri loftgæðum á hverjum tíma. Auk gólfhita.
Allar nári upplýsingar veita :
Ómar Hvanndal - omar@fastlind.is / S. 832-3200
Lára Þyri Eggertsdóttir – lara@fastlind.is / 899-3335
Guðrún Antonsdóttir - gudrun@fastlind.is / 621-2020**Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 9 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak og Dorma**