Fasteignaleitin
Skráð 7. júní 2025
Deila eign
Deila

Garðatorg 4

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
116 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
112.900.000 kr.
Fermetraverð
973.276 kr./m2
Fasteignamat
100.300.000 kr.
Brunabótamat
68.880.000 kr.
Mynd af Elka Guðmundsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Fasteignasali
Byggt 2015
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2351703
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
8
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upphaflegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegir
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Tvennar svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Á aðalfundi 2025 var rætt um ýmsar minniháttar framkvæmdir, meðal annars kom fram að stjórn ætlar að skoða handrið og flasningar á 4c.  Sjá nánar aðalfundargerð 27.02.25.
Elka lgf. s. 863-8813 hjá Fasteignasölunni TORG kynnir afar glæsilega og vel skipulagða íbúð á Garðatorgi 4B með stæði í bílageymslu.
Gullfallegt útsýni, tvennar svalir, tvö rúmgóð svefnherbergi, tvö baðherbergi og sér þvottahús.
Nánar tiltekið íbúð 308 við Garðatorg 4B sem er 116 fm að stærð, þar af 8,8 fm geymsla.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.
--- Bókið einkaskoðun, hægt að sýna með stuttum fyrirvara ---


Nánari lýsing;
Virkilega falleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 3ju hæð með tvennum svölum í nýlegu fjölbýli með lyftu við Garðatorg 4B í Garðabæ.
Húsið er byggt árið 2015 og er með sérsmíðuðum innréttingum frá GKS með quartz steini á borðum.
Svalir bæði í austur og vestur ásamt sérbílastæði í lokuðum bílakjallara.  

Nánari lýsing:
Gengið inní forstofu með harðparketi á gólfi og góðum skápum sem ná uppí loft.
Á hægri hönd er gengið inní annað af tveimur baðherbergjum íbúðarinnar (gestasnyrting) og þaðan er gengið í þvottahús.
Þvottahús  er rúmgott með flísum á gólfi og innréttingu, gluggi opnanlegur til austurs.  Þvottahúsið er innaf gestasnyrtingu en rennihurð aðskilur rýmin.
Alrými er rúmgott og samanstendur af stofu og eldhúsi.
Eldhúsið er með harðparketi á gólfi og fallegri eldhúsinnréttingu með steini á borðum frá GKS. Rúmgóð eyja við eldhús sem hægt er að sitja við.  Bakaraofn í vinnuhæð, stórt spanhelluborð, tengi fyrir uppþvottavél og falleg vifta yfir eyju. Gluggi til austurs og útgengi á svalir með útsýni yfir Garðatorgið.
Stofa er með harðparketi á gólfi rúmar vel bæði setustofu og borðstofu. Gluggar til vesturs og útgengi á vestursvalir með mjög fallegu útsýni til sjávar og fjalla.
Hjónaherbergi með harðparketi á gólfi, góðum skápum og glugga til vesturs með fallegu útsýni.
Svefnherbergi II með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til austurs.
Baðherbergi er mjög rúmgott með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili og upphengt salerni. Falleg innrétting við vask með speglaskáp. Handklæðaofn og útloftun.
Bílastæði er í lokuðum, upphituðum og afar snyrtilegum bílakjallara. 
Myndavéladyrasími er í íbúð og er sameign öll til fyrirmyndar.  Sameiginleg vagna- og hjólageymsla.  Stigagangur teppalagður.  
Sér geymsla er staðsett í sameign og er 8,8 fermetrar að stærð með máluðu gólfi, geymslan er hluti af heildarfermetrum eignar (íbúðin sjálf er 107,2 fermetrar) - Svalir eru 8,7 fm og 5,8 fm og eru ekki inní skráðum fermetrum.
Eftirsótt staðsetning við Garðatorg í Garðabæ þar sem öll helsta þjónusta er í göngufjarlægð, til að mynda sundlaug, heilsugæslustöð, snyrtistofa, hárgreiðslustofur, nuddstofur, apótek, verslanir, veitingahús og margt fleira.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
14/01/2025100.300.000 kr.106.900.000 kr.116 m2921.551 kr.
12/08/201645.200.000 kr.49.000.000 kr.116 m2422.413 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 2015
Fasteignanúmer
2351703
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
E1
Númer eignar
8
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.230.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eskiás 1
Opið hús:12. júní kl 17:30-18:00
Skoða eignina Eskiás 1
Eskiás 1
210 Garðabær
127.9 m2
Fjölbýlishús
413
859 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Lautargata 3
Skoða eignina Lautargata 3
Lautargata 3
210 Garðabær
111.1 m2
Fjölbýlishús
413
944 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Holtsvegur 39
3D Sýn
Bílastæði
Opið hús:11. júní kl 17:30-18:00
Skoða eignina Holtsvegur 39
Holtsvegur 39
210 Garðabær
133.7 m2
Fjölbýlishús
213
860 þ.kr./m2
115.000.000 kr.
Skoða eignina Maríugata 38
Bílastæði
Skoða eignina Maríugata 38
Maríugata 38
210 Garðabær
143.7 m2
Fjölbýlishús
413
765 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin