DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 22. ágúst 2025

Valshlíð 1

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
58 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
48.675.000 kr.
Fermetraverð
839.224 kr./m2
Fasteignamat
29.500.000 kr.
Mynd af Aron Már Smárason
Aron Már Smárason
Löggiltur fasteignasali
Garður
Fasteignanúmer
2532558
Landnúmer
223517
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Byggingarstig
B1 - Byggingarleyfi

Heima fasteignasala kynnir Valshlíð 1 – Íbúð 103.

Verð miðast við Sameignaleið S8 ehf. – 75% kaup. Fullt verð: 64.900.000 kr.

Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Afhending er hafin.

S8-Sameign í boði:

  • Þú fjármagnar 75% — 48.675.000 kr. (lágmark 75%)
  • S8 ehf. á 25% hlut í allt að 10 ár
  • Lágmark 10% eigið fé (4.867.500 kr.)
  • Nýtir þú kauprétt innan 3 ára færðu leigugreiðslur endurgreiddar
  • Nánari upplýsingar á s8.is/joint

Sendu fyrirspurn á heimaf@heimaf.is eða hringdu í síma 5832000 og fáðu allar upplýsingar um íbúðina. Hafðu samband og bókaðu skoðun hjá okkur.

Á Sölusíða eignarinnar færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.

2ja herbergja íbúð á 1. hæð í vesturenda Hlíðarhorns, 58,0 fm (þar af 4,0 fm geymsla í kjallara). Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í opnu rými með útgengi á vestursvalir, svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens, ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie og gólfefni frá Álfaborg. Sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema: Mjöll 1.

Í anddyri er fataskápur. Bjart alrými með eldhúsi og stofu með útgengi á vestursvalir. Hvít eldhúsinnrétting, hvítur quartz-steinn á borðum og krómuð blöndunartæki. Hjónaherbergi með fataskápum. Baðherbergi með walk-in sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar, hvít innrétting og speglaskápur. Krómuð blöndunartæki. Afmörkuð aðstaða á baði fyrir þvottavél og þurrkara. Sérgeymsla í kjallara (0020). Sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með samnýtingu þar sem íbúar hafa forgang.

Verð miðast við Sameignaleið S8 ehf. – 75% kaup. Fullt verð: 64.900.000 kr.

ATH. Kaupendur greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 einstaklega vandaðar og fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar í alla staði, hvað varðar hönnun, innréttingar og tæki. Einungis er unnið með bestu fáanlegu lausnir og efni og umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og við, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Á heimasíðu Hlíðarhorns, www.hlidarhorn.is, getur þú skoðað allar þær fjölbreyttu íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni, á þessum frábæra stað í miðbænum.

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu byggingaraðila og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir úr auglýstri íbúð geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.

Önnur gjöld sem kaupandi mun þurfa að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (11)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lofnarbrunnur 1
Opið hús:29. apríl kl 17:00-17:45
IMG_5239.JPG
Skoða eignina Lofnarbrunnur 1
Lofnarbrunnur 1
113 Reykjavík
159.5 m2
Fjölbýlishús
423
720 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Sómatún 11 neðri hæð
Sómatún 11 neðri hæð
600 Akureyri
96.7 m2
Fjölbýlishús
312
816 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Skoða eignina Maríugata 38
Opið hús:29. apríl kl 18:00-18:30
Skoða eignina Maríugata 38
Maríugata 38
210 Garðabær
90.1 m2
Fjölbýlishús
312
916 þ.kr./m2
82.500.000 kr.
Skoða eignina Kambavað 1-3
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Kambavað 1-3
Kambavað 1-3
110 Reykjavík
88.3 m2
Fjölbýlishús
312
928 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin