DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:20. apríl kl 16:15-17:00
Skráð 11. apríl 2024

Sómatún 11 neðri hæð

FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
96.7 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
78.900.000 kr.
Fermetraverð
815.926 kr./m2
Fasteignamat
63.900.000 kr.
Brunabótamat
52.150.000 kr.
BD
Björn Davíðsson
Löggiltur fasteignsali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2347819
Landnúmer
208627
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
2014
Raflagnir
2014
Frárennslislagnir
2014
Gluggar / Gler
2014
Þak
2014 / Einhalla timburþak með pappa
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
8,08
Upphitun
Hitaveita - Gólfhiti. Sér húsfélag fyrir Sómatún 11 sem innheimtir fyrir hitaveitu.
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Slöngukefli á veröndinni fylgir ekki með við sölu eignar. 
Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Sómatún 11 - Vönduð og vel skipulögð 3-4ra herbergja íbúð með sér inngangi á neðri hæð í fjölbýli í Naustahverfi - stærð 96,7 m²


Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, geymslu/herbergi og þvottahús. 

Forstofa er með flísum á gólfi, ljósum skáp og innfelldri lýsingu. Fyrir framan forstofuhurð er steypt stétt með hitalögnum í. 
Eldhús, vönduð innrétting frá Brúnás með Taj Mahal steini á bekkjum og eyju frá S.helgasyni ehf. Ísskápur og uppþvottavél eru innfelld í innréttingu. Bora helluborð með innbyggðri viftu. Úr eldhús er hurð út á sólpall til suðurs.
Stofa og eldhús eru í opnu rými. Þar er nýlegt ljóst harðparket á gólfum og stórir gluggar til vesturs. Innfelld lýsing er í lofti. 
Svefnherbergin eru tvö, bæði með ljósu harðparketi á gólfi og ljósum fataskápum. Stærð herbergja er skv. teikningum 8,4 og 14,3 m².
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, grárri innréttingu og speglaskáp, upphengdu wc, walk-in sturtu og handklæðaofni. Innfelld lýsing er í lofti. 
Geymsla er með flísum á gólfi, ljósum fataskáp, opnanlegum glugga og hurð út á sólpall. Geymsla hefur verið notuð sem svefnherbergi og er skv. teikningum 9,0 m² að stærð. 
Þvottahús er til hliðar úr forstofu og með flísum á gólfi. Bekkur með stálvask og ljós innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Rennihurð er inn í þvottahúsið. 

Sameiginleg geymsla/kyndikompa er undir stigapalli og tröppum.

Annað
- Árið 2024 var lagt nýtt harðparket íbúðina, settar upp nýjar hvítar innihurðar, ný innrétting í þvottahús og nýjir frontar á fataskápa og eldhúsinnréttingu.
- Öll tæki í eldhúsi voru endurnýjuð árið 2024.
- Innréttingar eru frá Brúnás. 
- Nýleg (2024) innfelld led lýsing er í helstu rýmum.
- Verönd til suðurs er á baklóðinni, steypt og timbur, einnig er steypt stétt fyrir framan húsið.
- Hitalagnir er í steyptri stétt fyrir framan og í verönd.
- Ljósleiðari er tilbúin til notkunar.
- Búið er að leggja fyrir og setja upp hleðslustöð.
- Húsið var múrviðgert og málað að utan sumarið 2022
- Eignin er laus til afhendingar í september.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
05/06/202454.050.000 kr.66.800.000 kr.96.7 m2690.796 kr.
07/10/202239.450.000 kr.61.500.000 kr.96.7 m2635.987 kr.
29/12/201728.700.000 kr.37.700.000 kr.96.7 m2389.865 kr.
06/10/201728.700.000 kr.37.500.000 kr.96.7 m2387.797 kr.
23/06/201728.700.000 kr.37.000.000 kr.96.7 m2382.626 kr.
28/05/201410.200.000 kr.25.800.000 kr.96.7 m2266.804 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lerkidalur 18
Skoða eignina Lerkidalur 18
Lerkidalur 18
260 Reykjanesbær
104 m2
Raðhús
312
720 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Dalsbraut 3
Skoða eignina Dalsbraut 3
Dalsbraut 3
260 Reykjanesbær
74.6 m2
Fjölbýlishús
312
709 þ.kr./m2
52.900.000 kr.
Skoða eignina Breiðbraut 670
Skoða eignina Breiðbraut 670
Breiðbraut 670
262 Reykjanesbær
94.7 m2
Fjölbýlishús
312
469 þ.kr./m2
44.400.000 kr.
Skoða eignina Beykidalur 2
Skoða eignina Beykidalur 2
Beykidalur 2
260 Reykjanesbær
87.2 m2
Fjölbýlishús
312
653 þ.kr./m2
56.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin