PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu Dalsbraut 3, íbúð 205, 260 Reykjanesbæ:
Um er að ræða nýlega 3ja herbergja íbúð með sérinngangi frá svalagangi á 2. hæð í nýlegu fjórbýlishúsi með lyftu byggt 2019. Birt stærð eignar samkvæmt fasteignaskrá HMS er 74,6 fm og þar af er íbúðarhluti 70 fm og geymsla 4,6 fm. Stórar 13,7 fermetra suðvestur svalir. Geymsla 4,6 fermetrar fylgir í sameign á jarðhæð.
Frábær staðsetning í göngufæri við nýjan leik- og grunnskóla.
Eignin skiptist í anddyri, stofu / borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og sér geymslu í sameign.
Nánari lýsing:
Anddyri / gangur með innfeldum hvítum fataskáp og flísum á gólfi.
Stofa / borðstofa hefur parket á gólfi og útgengi út á stórar suðvestur svalir.
Eldhús hefur hvíta innréttingu, parket á gólfi, innbyggð uppþvottavél, ísskápur sem fylgir með, bakaraofn og helluborð.
Hjónaherbergi er rúmgott með parket á gólfi og góðum fataskáp.
Svefnherbergi hefur parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi hefur flísar á góli og veggjum að hluta innréttingu við vask, sturtu, upphengt salerni, handklæðaofn, aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er á jarðhæð hússins, 4,6 fermetrar (númer 0119).
Húsið er staðsteypt, klætt að utan með bárujárnsklæðningu. Gluggar eru úr áli að utan og timbri að innan, timbur/álgluggar. Svalagangar eru vindvarðir með samlímdu öryggisgleri. Í húsinu er 22 íbúðir.
Á lóðinni eru 60 bílastæði sem öll eru í óskiptri sameign allra íbúða á Dalsbraut 3 og Dalsbraut 5. Þrjú af þessum bílastæðum eru sérstaklega ætluð fötluðum, eitt fyrir framan Dalsbraut 5 og tvö fyrir framan Dalsbraut 3. Baklóð er þökulögð.
Allar nánari upplýsingar veita:
Hákon Ó. Hákonarson
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 899-1298
hakon@prodomo.is
Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 860-6886
lilja@prodomo.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.