Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.8969565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu: Snoturt 24,6fm gestahús á 8400fm leigulóð, - stór og skjólsæll pallur með plastþaki yfir að hluta og geymsluskúr.
Í forstofu eru snagar fyrir útiföt og salerni þar við með nettum hitakút og einfaldri sturtuaðstöðu. Inni er stofameð eldhúsaðstöðu og svefnherbergi innaf með rúmi og tveimur kojum. Öllu haganlega fyrir komið svo plássið nýtist sem best. Innbú fylgir við sölu að einhverju leiti eftir nánara samkomulagi. Dúkur á gólfum og veggir og loft málað. Húsið er hitað með rafmagnsofnum og frárennsli tengt við rotþró. Undir því eru stálbitar og það hvílir á steyptum klumpum. Það er klætt að utan með bárujárni sem og þakið, gluggar og hurð úr tré. Stór, nýmálaður pallur framan við með skjólveggjum og plastþaki yfir að hluta og geymsluskúr í einu horninu. Lóðin er 8400fm leigulóð og nýtingarhlutfall hennar er samkvæmt gildandi deiliskipulagi 0,03 þannig að byggingarheimildir eru vel rúmar. Á henni er djúp laut með skemmtilegum nýtingarmöguleikum fyrir hugmyndaríkt fólk. Svæðið er læst með símahliði og stutt í margs konar afþreyingu eins og golfvelli og sundlaugar. Vinalegur staður með alls konar möguleika.
--VINSAMLEGAST BÓKIÐ EINKASKOÐUN--
Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar og sýnir eignina. S. 896 9565 loftur@husfasteign.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna: 1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup) lögaðilar 1,6% 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800.- af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
05/07/2019
9.140.000 kr.
9.200.000 kr.
24.6 m2
373.983 kr.
Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.