Fasteignasalan Hvammur 466 1600Davíðshagi 8 íbúð 205 - Björt og vel skipulögð stúdíó íbúð á 2. hæð í fjölbýli með lyftu í Hagahverfi - stærð 40,3 m²Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, svefnrými og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Sér geymsla er á jarðhæðinni.
Anddyri og
eldhús eru með harðparketi á gólfi og vandaðri hvítri og spónlagðri eikarinnréttingu með flísum á milli skápa.
Í
stofu er harðparket á gólfi og rennihurð út á steyptar og yfirbyggðar suður svalir.
Svefnrýmið er afmarkað frá stofu með léttum vegg. Þar er harðparket á gólfi, stór spónlagður eikar fataskápur og opnanlegur gluggi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, hvítri innréttingu og speglaskáp fyrir ofan, upphengdu wc og sturtu. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherbergi og þar er vélrænt útsog.
Sér geymsla er á jarðhæðinni, skráð 2,4 m² að stærð.
Annað- Gólfhiti er í íbúðinni.
- Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð
- Mynddyrasími.
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- Stutt er í leik- og grunnskóla.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.