VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu íbúð á annari hæð við Hveramörk 14, 810 Hveragerði.
Íbúðin er með sérinngangi, miðsvæðis í Hveragerði, stutt í grunnskóla, heilsugæslu og fl.
Eignin telur forstofu, alrými með eldhúsi og stofu, eitt svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.
Eignin er samtals 53,0m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands. Íbúð 45,8m² og sér geymsla 7,2m²
Fasteignamat eignarinnar er kr.24.800.00.-
Eignin skiptist eftirfarandi:
Forstofa, eldhús/stofa, baðherbergi, svefnherbergi.
Gengið er inn um sérinngang á fyrstu hæð hússins.
Þaðan er gengið upp teppalagðan stiga í íbúðina.
Eldhús og stofa eru í sama rými.
Lítil eldhúsinnrétting með eldavél og ofni.
Svefnherbergið, sem og íbúðin öll, er með gluggum til suðurs.
Baðherbergi með salerni, handlaug, speglaskáp og litlu baðkari með sturtuaðstöðu.
Geymsla íbúðar er inn af hjóla- og vagnageymslu sem er í skúr á vesturhluta lóðarinnar.
Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.