RE/MAX kynnir – Stekkjarsel 7
Björt og rúmgóð tveggja herbergja íbúð á jarðhæð í tvíbýlishúsi með sérinngangi og sérafnotarétti af lóð. Eignin er staðsett innst í botnlanga við rólega og fjölskylduvæna götu þar sem stutt er í skóla og alla helstu þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Gíslason löggiltur fasteignasali í gsm 694-4700 eða steini@remax.isNánari lýsing eignar:
Anddyri: Komið er inn um sérinngang í anddyri með flísum á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með plastparketi á gólfi. Eldhúsið er opið við stofuna og mynda rýmin saman opið og notalegt alrými.
Eldhús: Eldhúsinnrétting var endurnýjuð fyrir fáeinum árum, flísar á gólfi. Eldhúsið er opið við stofu og tengist því vel við alrými íbúðarinnar.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart hjónaherbergi með plastparketi á gólfi.
Geymsla/vinnuherbergi: Aukarými með plastparketi á gólfi sem nýtist vel sem geymsla eða vinnuaðstaða.
Baðherbergi: Flísar á gólfi, flísalögð sturta, baðinnrétting og tengi fyrir þvottavél.
Lóð: Frágengin lóð með sérafnotarétti sem fylgir íbúðinni.
Staðsetning: Eignin er staðsett innst í botnlanga við rólega götu. Stutt er í skóla, verslanir og aðra helstu þjónustu.
Helstu kostir eignarinnar
Sérinngangur og staðsetning á jarðhæð.
Geymsla/vinnuherbergi innan íbúðar.
Frágengin lóð með sérafnotarétti.
Róleg staðsetning innst í botnlanga.
Stutt í skóla og helstu þjónustu.
ÍBÚÐIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ UNDIRRITUN KAUPSAMNINGSAllar nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Gíslason löggiltur fasteignasali í gsm 694-4700 eða steini@remax.isForsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.