Fasteignaleitin
Opið hús:19. okt. kl 14:15-14:45
Skráð 16. okt. 2025
Deila eign
Deila

Fífuland 19

Nýbygging • RaðhúsSuðurland/Selfoss-800
100.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
68.800.000 kr.
Fermetraverð
681.863 kr./m2
Fasteignamat
53.950.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Elín Urður Hrafnberg
Elín Urður Hrafnberg
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Byggt 2025
Þvottahús
Garður
Gæludýr leyfð
Aðgengi fatl.
Sérinng.
Fasteignanúmer
2535306
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Stál/timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
nei
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
5 - Tilbúin til innréttingar
Gimli fasteignasala og Elín Urður Hrafnberg kynna: Virkilega bjart og fallegt 4ra herbergja miðjuraðhús í Fífulandi 19 á Selfossi.

Um er að ræða nýtt 101 fm miðjuraðhús með 3 svefnherbergjum á Selfossi.

Húsið er byggt úr timbri árið 2025 og er klætt að utan með grárri álklæðningu. Eignin skiptist í forstofu, 3 herbergi, eldhús/borðstofu/stofu í alrými, hvítri eldhúsinnréttingu með bakaraofni í vinnuhæð, eyju/tanga með spanhelluborði og góðu skúffum, hægt er að sitja við eyjuna. Innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél. Rennihurð út í garð þar sem búið er að tyrfa hluta af lóðinni. Innbyggð lýsing er í öllum rýmum með dimmer. Gólfhiti í öllu húsinu ásamt stýringum. 
Mjög öflugt loftræstikerfi er í húsinu sem sér um að hita loftið áður en það dreifist.
Möl í innkeyrslu, forsteypt ruslatunnuskýli fyrir þrjár tunnur og þökulögð lóð í garði fyrir utan þar sem gert er ráð fyrir palli.

* Tilbúið til afhendingar við kaupsamning.
* Nýbygging.
* Lyklaklárt.
* Öflugt loftræstikerfi.


Nánari upplýsingar veitir: Elín Urður Hrafnberg Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6902602, tölvupóstur elin@gimli.is eða gimli@gimli.is

NÁNARI LÝSING:
Forstofa: með 60*60 flísum og innbyggðu forstofuskáp.
Gangur: með vínilparketi.
Eldhús: Falleg hvít innrétting með dökkri borðplötu, svörtum vask og blöndunartækjum, bakaraofni í vinnuhæð og spanhelluborð í eyju/tanga sem hægt er að sitja við. Lýsing á milli efri og neðri skápa, innbyggður ísskápur með frysti og innbyggð uppþvottavél. Vínilparket á gólfi. 
Stofa: vínilparket á gólfi og útgengt um rennihurð í garð.
Hjónaherbergi: með vínilparketi á gólfi og hvítur tvöföldum fataskápum.
Herbergi2#: vínilparket á gólfi ásamt hvítum fataskáp.
Herbergi3#: vínilparket á gólfi ásamt hvítum fataskáp.
Baðherbergi: með ljósum 60*60 flísum á gólfi ásamt tveimur veggjum, innbyggðu salerni, flísalagðri sturta með glerþili og innbyggðum blöndunartækjum, handklæðaofni og hvítri innréttingu með vaski og speglaskáp með ljósum fyrir ofan. 
Þvottahús: með mjög rúmgóðri hvítri innrétting með vaski, gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Ljósar 60*60 flísar á gólfi. 
Lóð: mulingur í bílaplani ásamt steyptu ruslaskýli, búið er að þökuleggja garð að aftan fyrir utan þar sem gert er ráð fyrir palli.

Eign sem vert er að skoða. 

Kaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.


Niðurlag:
Frábært og vandað fjölskylduhús stutt frá skóla, leikskóla og verslunum. 
 
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Álalækur 17
Skoða eignina Álalækur 17
Álalækur 17
800 Selfoss
121.9 m2
Fjölbýlishús
514
565 þ.kr./m2
68.900.000 kr.
Skoða eignina Austurhólar 6
Skoða eignina Austurhólar 6
Austurhólar 6
800 Selfoss
111.3 m2
Fjölbýlishús
412
628 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Mýrarland 5
Skoða eignina Mýrarland 5
Mýrarland 5
800 Selfoss
94.9 m2
Raðhús
413
694 þ.kr./m2
65.900.000 kr.
Skoða eignina Bergvík 7
Skoða eignina Bergvík 7
Bergvík 7
800 Selfoss
99.3 m2
Raðhús
413
694 þ.kr./m2
68.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin