RE/MAX og Oddur fasteignasali kynna í einkasölu: Nýleg og hugguleg þriggja herbergja íbúð á 4. hæð að Grensásvegir 1b. Íbúðin er skráð 93,5 fm samkvæmt HMS, þar af geymsla 6,6 fm. Íbúðin er hluti af glæsilegu 41 íbúða fjölbýlishúsi sem hannað er af Archus og Rýma arkitektastofum, þar sem mikil áhersla er lögð á vandaðan frágang, nútímalega hönnun og gæðaefni. Archus sá jafnframt um innanhúshönnun og efnisval. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar frá Iwa og falleg innfelld LED lýsing er í eldhúsi og loftum.
Allar nánari upplýsingar veitir Oddur í síma 782-9282 eða á oddur@remax.is
Smelltu hér til að skoða eignina í 3-D
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent beint af vef remax.isNánari lýsing:Forstofa: með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús: er rúmgott með vandaðri innréttingu og eyju. Bosch tæki í eldhúsi, spanhelluborð, ofn, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, auk Eico háfs.
Stofa: parket á gólfi og útgengt á svalir sem snúa í suð-austur.
Hjónaherbergi: er rúmgott með parketi á gólfi og góðu skápaplássi.
Svefnherbergi: parket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi: er stórt með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Walk-in sturta, upphengt salerni, handklæðaofn og aðstöða fyrir þvottavél og þurrkara.
Gólfhiti er í allri íbúðinni og innfelld lýsing í loftum. Geymsla er í sameign ásamt hjólageymslu. Bílakjallari er undir húsinu á tveimur hæðum, alls 184 bílastæði. Hægt er að leigja stæði til langs tíma eða greiða gegn tímagjaldi. Eignin er á frábærum stað miðsvæðis í borginni, í nágrenni við Skeifuna og Laugardalinn. Stutt er í fjölbreytta þjónustu, verslanir, veitingastaði og afþreyingu í Glæsibæ, Ármúla og nágrenni. Allir skólastigar eru í göngufæri og útivistarsvæði Laugardalsins með sundlaug, líkamsrækt og fallegum gönguleiðum er rétt hjá.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk