***VALHÖLL KYNNIR * Vesturberg 69, Nýstandsett einbýli***
Glæsilegt bjart og mikið endurnýjað fjölskyldu einbýli með aukaíbúð við Vesturberg 69 í Reykjavík. Eignin er með 5-6 svefnherbergjum á aðalhæðinni og studioíbúð á neðri hæðinni með sér-inngangi.
Húsið er byggt árið 1974 og er samtals 226,50 m². Eignin hefur gengið í gegnum mjög viðamiklar endurbætur að innan sem utan. Allar neysluvatnslagnir, hitagrind, ofnar, skolplagnir og rafmagn er nýtt með dimmerum á öllum rofum, auk þess sem gluggum og hurðum hefur verið skipt út. Húsið býður upp á björt og nútímaleg rými með m.a. nýrri sér-smíðaðri eldhúsinnréttingu, sér-smíðuðum fataskápum í anddyri og fyrir herbergin ásamt vönduðum baðherbergjum.
Skólplagnir endurnýjaðar undir húsi og frá húsi eru lagnir fóðraðar út í brunn.
Aðalhæð:
Aðalrými hússins samanstendur af stofu, eldhúsi og gestasalerni, ásamt anddyri. Gólf flotuð á aðalhæðinni fyrir utan anddyri og baðherbergi sem er flísalagt.
Anddyri: Flísalagt anddyri með nýjum, sérsmíðuðum skápum.
Herbergi: Rúmgott herbergi í alrými sem gæti nýst sem barnaherbergi eða skrifstofa.
Eldhús: Ný, sér-smíðuð hvít innrétting með nýjum og vönduðum tækjum, innbyggður AEG bakaraofn í vinnuhæð. Nýtt spanhelluborð frá AEG. Nýr vaskur og Grohe blöndunartæki. Uppþvottavél frá AEG og gert ráð fyrir innbyggðum ísskáp.
Svefnherbergisálma hússins telur hjónaherbergi og 3 barnaherbergi. Auk þess er herbergi innaf skála í alrými og eru því svefnherbergin 5 talsins á aðalhæð.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með nýjum, sérsmíðuðum fataskápum.
Svefnherbergi: Á ganginum eru 3 svefnherbergi til viðbótar með nýjum ofnum og björtum gluggum. Á herbergisgangi er tvöfaldur fataskápur sem þjónar þessum herbergjum.
Baðherbergi: Glæsilegt baðherbergi, endurnýjað frá grunni. Skólplagnir endurnýjaðar að stamma og svo fóðraður út í brunn. Flísalagt með 60x120 flísum frá Álfaborg, vegghengt salerni og nýjar innréttingar með Grohe blöndunartækjum. Nýr handklæðaofn. Lagnir fyrir þvottavél og þurrkara eru til staðar, þó möguleiki sé á að skipta út þvottaaðstöðu fyrir skáp vegna þvottahúss á neðri hæð. Sturta með glervegg og náttúruleg lýsing frá þakglugga.
Stofa og borðstofa: Rúmgott og bjart alrými með mikilli lofthæð og stórum ál/tré gluggum sem veita mikið náttúruljós. Gólf flotuð, tilbúin fyrir gólfefni.
Neðri hæð:
Mjög lítið mál að útbúa aukaíbúð á neðri hæð með sér inngangi og sér rafmagnstöflu.
Stúdíoíbúð: Stórt herbergi á neðri hæð með nýrri eldhúsinnréttingu, helluborði og vaski. Sérinngangur og hægt að útbúa auka íbúð, í dag er opið á milli.
Gestasalerni / Baðherbergi: Nýlega smíðað frá grunni með nýjum lögnum og niðurfalli. Flísalagt með 60x120 flísum frá Álfaborg, vegghengt salerni og nýjar innréttingar með Grohe blöndunartækjum. Nýr handklæðaofn. Gert ráð fyrir að koma fyrir sturtu ef búa á til auka íbúð.
Þvottahús: Nýtt og bjart þvottahús með nýrri innréttingu og flísalögðu gólfi. Gert er ráð fyrir allt að þremur þvottavélum eða sambærilegum tækjum.
Bílskúr: með heitu og köldu vatni, vaski, ofni og góðu aðgengi.
Ytra byrði húss:
Húsið hefur verið sprunguviðgert og múrað upp á nýtt og málað að utan á sama tíma 2025
Allir gluggar og útidyrahurðir hafa verið endurnýjaðar, með vönduðum ál/tré gluggum frá Gluggasmiðjunni. 2025
Útilýsing hefur verið endurnýjuð. 2025
Járn og pappi á þaki endurnýjað fyrir u.þ.b. 3-4 árum, ásamt þakgluggum.
Að innan:
Innandyra hafa allar neysluvatnslagnir og hitagrind verið endurnýjaðar ásamt öllum ofnum. Allar skolp- og frárennslislagnir endurnýjaðar inn í húsi og fóðraðar að brunni. Allt rafmagn er endurnýjað og nýtt dregið í, dósir brotnar upp og gerðar tvöfaldar, með tveimur nýjum rafmagstöflum (sér tafla fyrir neðri hæð). Baðherbergi á efri hæð og gestasalerni á neðri hæð eru ný frá grunni. Miðhæðin er flotuð og tilbúin fyrir gólfefni. Nýjar hvítar yfirfelldar hurðir eru í öllu húsinu frá Birgisson. Sérsmíðaðir fataskápar og innréttingar að hluta.
Nánari upplýsingar veita:
Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.8201002 / agnar@valholl.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. VALHÖLL fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.