Fasteignaleitin
Skráð 26. júní 2025
Deila eign
Deila

Tröllakór 1-3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-203
101.7 m2
3 Herb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
785.644 kr./m2
Fasteignamat
70.050.000 kr.
Brunabótamat
58.780.000 kr.
Mynd af Guðný Þorsteinsdóttir
Guðný Þorsteinsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2007
Lyfta
Bílastæði
Fasteignanúmer
2286922
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Númer íbúðar
5
Lóðarréttindi
Leigulóð
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA
Nánari upplýsingar veitir Guðný Þorsteins, Löggiltur fasteignasali, í síma 7715211, tölvupóstur gudnyth@remax.is
SMELLTU HÉR OG SKOÐAÐU EIGNINA Í ÞRÝVÍDD.

Re/Max ásamt Guðnýju Þorsteins löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu:
 Fallega og bjarta 3gja herbergja íbúð í fjölbýlishúsi með góðum suður svölum ásamt bílastæði í kjallara, bílastæði eru einnig við hús, hitalögn er í að keyrslu að bílageymslu. Eignin er á 3. hæð í viðhaldslitlu lyftuhúsi. Falleg eign í góðu og barnvænu hverfi. Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 75.350.000 kr.

Eignin samanstendur af: Forstofu, eldhúsi, borðstofu og stofu í sameiginlegu rými með útgengi á góðar suður svalir, 2 svefnherbergjum, baðherbergi ásamt sér þvottahúsi. Bílastæði er í upphituðum kjallara, sér geymsla er í sameign ásamt vagna- og hjólageymslu. 
Samkvæmt Fasteignayfirliti er íbúðin 92,8fm ásamt 8,9fm geymslu samtals 101,7fm við það bætis 11,2fm svalir ásamt bílastæði í kjallara 25,3fm að stærð. 

Nánari lýsing:
Forstofa: Er með fataskáp, flísar á gólfi.
Eldhús: Er með innréttingu á tvo vegu sem nær upp í loft, tengi fyrir uppþvottavél, opnanlegur gluggi, flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa: Eru í flæðandi, björtu og rúmgóðu rými með útgangi er út á suður svalir, parket á gólfi.
Svalir: Eru 11,2fm að stærð og snúa til suðurs.
Herbergi I: Er rúmgott með fjórföldum fataskápum sem ná upp í loft, parket á gólfi. 
Herbergi II: Er gott með tvöföldum fataskápum sem ná upp í loft, parket á gólfi. 
Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtu, handklæðaofn ásamt upphengt salerni. 
Þvottahús: Er innan íbúðar, skápar fyrir ofan vélar, flísar á gólfi.
Bílastæði: Er 25,3fm að stærð með hleðslustöð og er í upphituðum kjallara.
Geymsla: Er 8,9fm að stærð og í sameign. 
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Frábær staðsetning og ýmislegt í boði í fallegu umhverfi:
Íþróttamiðstöðin Kórinn er skammt frá þar sem HK býður upp á ýmiskonar íþróttaiðkun.  Hörðuvallaskóli er í göngufæri sem og 2 leikskólar í Baugakór, Baugur og Kór, einnig er leikskólinn Austurkór í Kórahverfi.  Stutt er í íþróttamiðstöðina Versali þar sem hægt er að fara í sund í Salalauginni og einnig er Gerpla með æfingaaðstöðu fyrir fimleika.  Krónan er í Vallakór og einnig er þjónustukjarni í Ögurhvarfi þar sem er t.d. Bónus, WorldClass og Reebok.  Þjónustukjarni er við hliðina á Salalaug þar sem er Heilsugæslustöð, Apótek og Nettó Matvöruverslun, einnig er stutt í Smáralind og Smáratorg.  Fyrir útivistina er einnig fjölmargt í boði.  Heiðmörkin með öllum sínum útivistarmöguleikum er rétt handan við hornið, Vatnsendavatn og Elliðavatn í göngufæri sem og golfvöllur GKG, einnig er Guðmundarlundur þarna skammt undan. 
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Guðný Þorsteins löggiltur fasteigna- og skipasali s: 771-5211 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið gudnyth@remax.is.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Re/Max því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
04/04/202251.000.000 kr.65.400.000 kr.101.7 m2643.067 kr.
14/08/200825.855.000 kr.24.000.000 kr.101.7 m2235.988 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 2007
Fasteignanúmer
2286922
Númer hæðar
B1
Númer eignar
1
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.030.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vallakór 2
Bílastæði
Skoða eignina Vallakór 2
Vallakór 2
203 Kópavogur
93.2 m2
Fjölbýlishús
312
847 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Skoða eignina Klappakór 1e
Bílastæði
Skoða eignina Klappakór 1e
Klappakór 1e
203 Kópavogur
88.1 m2
Fjölbýlishús
312
941 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Akurhvarf 3
Bílastæði
Skoða eignina Akurhvarf 3
Akurhvarf 3
203 Kópavogur
105.3 m2
Fjölbýlishús
312
759 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Akurhvarf 5
Bílastæði
Skoða eignina Akurhvarf 5
Akurhvarf 5
203 Kópavogur
108.1 m2
Fjölbýlishús
312
754 þ.kr./m2
81.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin