Díana og Hulda löggiltir fasteignasalar hjá fasteignasölunni Lögheimili Eignamiðlun ehf. kynnir eignina Burknavellir 17c, 221 Hafnarfjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-03, fastanúmer 226-2501 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Burknavellir 17c er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 226-2501, birt stærð 110.9 fm.
Björt og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð sem er staðsett á jarðhæð að Burknavöllum 17c, 221 Hafnarfirði.
*** ÚTLEIGUMÖGULEIKI *** HERBERGI MEÐ BAÐHERBERGI Í FORSTOFU***
Smelltu hér til að fá söluyfirlitið
Skipulag: Opið rými með upprunalegu eldhúsi, borðstofu, stofu, útgengt á svalir frá stofu, þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Íbúðin er jarðhæð með sérinngangi og afgirtum sólpalli með skúr, geymsla er á jarðhæð og sameiginlegt hjólarými er í kjallara eignar.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Flísar á gólfi. Sérinngangur.
Hol: Með parketi.
Geymsla: Innaf holi með parketi.
Herbergi 1: Rúmgott með parketi á gólfi og baðherbergi.
Baðherbergi innaf herbergi frá forstofu: Með innréttingu,handlaug, handklæðaofn, klósetti og sturtu.
Herbergi 2: Rúmgott með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi: Fataskápur og parketi á gólfi.
Stofa/borðstofa: Með parketi á gólfi. Gengið út á svalir frá stofu þar sem er skúr og hlið er út á sameiginlegan pall.
Eldhús: Bjart með fallegri innréttingu opið inn í stofu, parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt á veggjum og gólfi. Innrétting með handlaug, handklæðaofn, sturtu, klósett og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Pallur: Stór pallur með útigeymslu.
Bílastæði: Hleðslustöð og næg stæði eru fyrir utan húsið.
Parket flæðir um eignina, flísar á baðherbergjum og við inngang.
Að sögn eiganda: hefur eignin verið breytt frá upphaflegum teikningum.
Möguleikar á að leigja út fremra herbergi þar sem það er með baðherbergi.
Falleg íbúð á jarðhæð með sérinngangi og afgirtum sólpalli. Stutt er að ganga í grunn- og leikskóla, verslanir, sundlaug, líkamsrækt og íþróttasvæði Hauka eru í göngufæri ásamt annarri þjónustu í næsta nágrenni. Fallegar gönguleiðir eru í hverfinu, Ástjörn og Hvaleyrarvatn.
Nánari upplýsingar veita:
Díana Arnfjörð Löggiltur fasteignasali, í síma 895 9989, tölvupóstur diana@logheimili.is.
Hulda Ósk Löggiltur fasteignasali, í síma 771 2528, tölvupóstur hulda@logheimili.is.