BYR fasteignasala kynnir í einkasölu MIÐSTRÆTI 22 ÍBÚÐ 201, 740 Neskaupstaður. Þriggja herbergja íbúð á efri hæð með sér inngangi. Smellið hér fyrir staðsetningu. Húsið er steypt, byggt árið 1945. Eignin skiptist í íbúð 79.6 m² og geymslu 10 m², samtals 89.6 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag íbúðar: Anddyri, hol, eldhús, stofa, tvö herbergi og baðherbergi.
Í sameign: Sér geymsla, sameiginlegt þvottahús, gangur. Köld geymsla.
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 483 5800 |Nánari lýsing: Anddyri, flísar á gólfi, tvöfaldur fataskápur (laus og fylgir),
gólfhiti er í anddyri.
Hol innan við anddyri, liggur að öðrum rýmum eignarinnar.
Stofa, parket á gólfi.
Eldhús, Brúnás innrétting, helluborð, háfur, ofn, gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu (laus og fylgir), borðkrókur, parket á gólfi.
Frá eldhúsi er hurð að sameiginlegu stigahúsi, þaðan liggur stigi niður í gang að geymslum íbúða, sameiginlegu þvottahúsi.
Herbergi I, parket á gólfi.
Herbergi II, parket á gólfi, fjórfaldur fataskápur (laus og fylgir).
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting, upphengt salerni, sturtuklefi,
gólfhiti er á baðherbergi, gluggi.
Rofar og tenglar hafa verið endurnýjaðir í flestum rýmum.
Sér geymsla er í sameign á neðri hæð. Köld geymsla undir stiga fylgir íbúðinni.
Sameiginlegt þvottahús, vinnuborð með stálvask, rafmagnstafla og hitatúba, málað gólf, guggi.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 216-9360. Miðstræti 22 Fjarðabyggð. Stærð: Íbúð 79.6 m². Geymsla 10 m². Samtals 89.6 m².
Brunabótamat: 45.250.000 kr.
Fasteignamat: 21.750.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2026: 25.700.000 kr.
Byggingarár: 1945.
Byggingarefni: Steypa
Eignarhald:
01.0 - Séreign. 01 x Sameign allra 10.2 Brúttó m².
01.2 - Séreign. 01.0103 Geymsla 10 Brúttó m². 01.0201 Íbúð á hæð 79.6 Brúttó m².