Austurbrú 18 íbúð 316 - Glæsileg þtiggja herbergja íbúð á fyrstu hæð í nýbyggingu - Stærð 112,9 m²
Nánari upplýsingar veitir Sigurður H. Þrastarson, siggithrastar@kaupa.is, 888-6661.
Hvammur fasteignasala 466-1600Smelltu
hér til að skoða lausar íbúðir og verkefnið.
Glæsileg og einstaklega vel hönnuð íbúð þar sem gæði, þægindi og vandaður frágangur fara saman. Íbúðin nýtur fallegrar birtu og rúmgóðra rýma auk þess sem stæði í lokaðri bílageymslu fylgir eigninni.Komið er inn í
forstofu með góðum fataskápum og útgengi á vesturverönd þar sem njóta má síðdegissólar í skjólsælu umhverfi.
Eldhúsið er hjarta heimilisins, opið og bjart með fallegri eyju sem sameinar vinnuaðstöðu og samveru. Innréttingarnar eru sérlega vandaðar með kvartsstein á borðplötum og innfelldum vaski. Spanhelluborð, bakaraofn í vinnuhæð og innfelld lýsing frá Lumex undirstrika nútímalegt og stílhreint yfirbragð. Allar skúffur og skápar eru með ljúflokum sem auka gæði og þægindi í daglegri notkun.
Stofa og
borðstofa mynda opið og heillandi alrými með stórum gluggum sem draga inn ríkulega dagsbirtu. Þaðan er útgengt á austursvalir þar sem blasir við útsýni yfir Pollinn og nærumhverfið.
Hjónaherbergið er rúmgott og vel skipulagt með góðum fataskápum, en
barnaherbergið er bjart og notalegt, einnig með fataskáp.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með vönduðum innréttingum frá Parka. Þar er rúmgóð sturta með glerskilum, upphengt salerni og glæsilegar kvartsborðplötur sem gefa rýminu fágað yfirbragð. Einnig er sérhannaður skápur fyrir þvottavél og þurrkara með kvartsborðplötu sem tryggir bæði snyrtilegan og hagnýtan frágang.
Við hlið eldhússins er sérlega hentugt
vinnuskot með glugga, fullkomið fyrir heimaskrifstofu eða vinnuaðstöðu sem fellur vel að nútíma lífsstíl.
Með eigninni fylgir
einkastæði í lokaðri bílageymslu, sem og sér geymsla í sameign, 7,4 m².
Allar innréttingar, innihurðir, skápar og Electrolux eldhústæki eru frá Parka.
Blöndunar- og hreinlætistæki eru frá Tengi.
Íbúðinni er skilað fullbúinni án gólfefna.
Sameign er með glæsilegra móti, þar sem komið er inn í rúmgott anddyri.
Flísar á gólfi frá kjallara og upp á pall fyrstu hæðar. Frá fyrstu hæð eru stigagangarnir teppalagðir.
Innangengt úr hverjum stigagangi niður í lokaða bílageymslu og úr bílageymslunni er innangengt fyrir eigendur íbúða í Áshamar 10-18 inn á Skáld Hótel.
Eigendur geta nýtt sér þjónustu hótelsins, þar má nefna morgunmat, þvottaþjónustu og líkamsrækt.
Eigninni er skilað skv. skilalýsingu verktaka.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það leggst á eignina.
Arkitektar: THG arkitektar
Verktaki: JE Skjanni ehf.