Fasteignaleitin
Skráð 29. júní 2025
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - El Raso

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
106 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
37.600.000 kr.
Fermetraverð
354.717 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
811120224
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Góðar svalir og möguleiki á þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLOTTAR ÍBÚÐIR – FRÁBÆRT SPA – FALLEGT UMHVERFI
Glænýjar og vandaðar 4ra herb. íbúðir, 3 svefnh. + 2 baðh. með flottri sameign á frábærum stað í hinu vinsæla El Raso hverfi, stutt frá Guardamar ströndinni, ca. 30 mín akstur frá Alicante flugvelli. Stutt göngufæri í verslanir og veitingastaðir og fallegar gönguleiðir í næsta nágrenni. Glæsileg sameign. Stæði í bílakjallara.
Einstakt tækifæri til að eignast nýja og flotta íbúð á fínu verði í frábæru umhverfi.
TILBOÐ: HÚSGAGNAPAKKI FYLGIR OG ER HANN INNIFALINN Í VERÐINU

Upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 00354 893 2495, Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869
og Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. karl@spanareignir.is. GSM 00354 777 4277.

Nánari lýsing:

Um er að ræða nýbyggð lyftuhús með 4ra herb. vel hönnuðum íbúðum. Íbúðirnar eru allar með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, góðri stofu/alrými og fallegu eldhúsi. Hægt er að velja íbúðir á jarðhæð með sér garði , miðhæðum með stórum svölum eða á efstu hæð og þá með stórum svölum og sér þaksvölum. Íbúðum með þaksvölunum fylgir heitur pottur, útisturta og útieldhús. Falleg hönnun og vandaðar innréttingar. Glæsileg sameign með SPA aðstöðu, sundlaug og líkamsræktaraðstöðu, petanga  og puttvelli. Góð leikaðstaða fyrir börnin. 
Innifalið í verði eru tæki í eldhúsi, eldavél, vifta, örbylgjuofn, ísskápur, þvottavél og uppþvottavél. Einni sturtugler á baðherbergjum.
Hægt er að fá íbúðirnar afhentar með húsgögnum gegn aukagjaldi.
Stærð íbúða er 91-106 fm. Þar við bætast stórar svalir (15-29fm), sér garður (39-333fm) og þakverönd (41-85fm) eftir því hvaða íbúð er valin.

Stæði í lokuðum bílakjallara fylgja.

Fallega hvíta sandströndin í Guardamar, sem liggur að Miðjarðarhafinu er í  næsta nágrenni. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir og fjöldi skemmtilegra veitingastaða og verslana gerir gönguferðina skemmtilegri. Friðuð náttúruperla við saltvatnið í næsta nágrenni. Hinn vinsæli sítrónumarkaður á sunnudögum er í næsta nágrenni.
 Alicante flugvöllur er í ca. 30 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og þar er úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. La Marquesa, Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast glænýja og vandaða íbúð á frábærum stað, stutt frá  öllu því sem gerir dvölina á Spáni  skemmtilega. Íbúðirnar eru tilbúnar og til afhendingar í júlí 2025-mars2026.

Verð  miðað við gengi 1Evra=145 ISK

Frá 259.900 Evrum (ISK 37.600.000)

Ofan á öll verð leggst ca. 13% kostn. við kaupin. (10% skattur og ca. 3% annar kostnaður)

Frábær staðsetning í fallegu og rólegu umhverfi. Hægt er að skoða tilbúnar sýningaríbúðir fullbúnar húsgögnum á staðnum.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Spánareignir aðstoða kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og við tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með mjög hagstæðum vöxtum.

Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, sameiginlegur sundlaugargarður, þakverönd, sér garður, air con, bílakjallari, Spa, líkamsrækt, heitur pottur, putt völlur,
Svæði: Costa Blanca, El Raso, Guardamar,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
811120224
Fasteignanúmer
811120224

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Los Balcones
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Los Balcones
Spánn - Costa Blanca
131 m2
Hæð
322
287 þ.kr./m2
37.600.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Los Altos
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Los Altos
Spánn - Costa Blanca
75 m2
Fjölbýlishús
322
525 þ.kr./m2
39.400.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR -San Miguel de Salinas
SPÁNAREIGNIR -San Miguel de Salinas
Spánn - Costa Blanca
86 m2
Hæð
423
421 þ.kr./m2
36.200.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Los Alcazares
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Los Alcazares
Spánn - Costa Blanca
102 m2
Fjölbýlishús
322
362 þ.kr./m2
36.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin