Lind fasteignasala og Bogi Molby Pétursson fasteignasali kynna til sölu: Bjarta og rúmgóða 3ja herbergja endaíbúð á 3. hæð ásamt stæði í lokuðu bílskýli. Vesturendi. Suðursvalur. Fallegar innréttingar og góð gólfefni. Fataherbergi inn af hjónaherbergi. Sjálfvirkir hurðaopnarar. Eigninni fylgir rúmgott stæði í lokuðu bílastæðahúsi. Fallegt útsýni og góðar göngu- og hjólaleiðir í hverfinu. Húsið staðsett í innst í botnlanganum, ofan götu, alveg við Heiðmörkina.
Lautargata 6 er 19 íbúða fjölbýli á fimm hæðum með aðalinngangi á 1. hæð ásamt lokuðu bílastæðahúsi. Burðarvirki hússins er staðsteypt úr járnbentri steinsteypu og útveggir klæddir með áli. Húsið er í Urriðaholti í Garðabæ sem er nýstárlegt hverfi. Umkringt óspilltri náttúru en um leið í nálægð við góðar samgönguæðar og vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins. Í jaðri hverfisins eru helstu útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, ósnortin náttúra ogglæsilegur golfvöllur landsins. Lóð frágengn, frágengin bílastæði og hellulagðar gönguleiðir. Sameiginleg útisvæði frágengin í samræmi við lóðarhönnun. Grassvæði fágengin og gróðurbeð grófjöfnuð. Aðkoma að húsi hellulögð með snjóbræðslu samkvæmt lagnateikningum. Aðalinngangur er á 1.hæð ásamt bílastæðahúsi. Byggingaraðili: Þarfaþing hf. Aðalhönnuður hússins: Arkís arkitektar ehf.
Nánari lýsing: Anddyri: Parket á gólfi, fataskápur. Eldhús: Parket á gólfi, gott skápa- og borðpláss, innréttingin er frá Voke III, framhliðar eru beige, grábrúnar að lit, borðplötur eru sérsmíðaðar úr hvítæðóttum Quarts stein með undirlímdum vaski úr stáli. Eldhústæki eru frá Electrolux að undanskyldu helluborði sem er frá Elica með innbyggðum háf. Innbyggður ísskápur, frystir og uppþvottavél fylgir. Alrými: Parket á gólfi, opið og bjart rými, útgengt út á svalir. Hjónaherbergi: 10,9 fm, parket á gólfi, fatarými. Herbergi: 10,4 fm, parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Gráar flísar 60x60 flísar á gólfi 60x120 að stærð á veggjum að hluta, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta, sturtutæki eru hitastýrð og innbyggð. Innréttingin er frá Voke III, framhliðar eru beige, grábrúnar að lit, borðplötur eru sérsmíðaðar úr hvítæðóttum Quarts stein með undirlímdum vaski. Þvottahús: Innaf baðherbergi, rennihurð á milli rýma, innrétting undir þvottavél og þurrkara framleidd af Voke III, beige grábrúnar að lit. Suðursvalir: 9,3 fm. Geymsla: 6,8 fm í sameign. Hjóla- og vagnageymsla: Í sameign. Bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi með hleðslutæki
Gólf eru parketlögð harðparketi frá Harðviðarval. og gólf í baðherbergjum og þvottahúsum eru flísalögð með flísum frá Álfaborg ehf. Innihurðar eru yfirfelldar og sprautulakkaðar (hvítar) af gerðini Dana frá Parka ehf. Innréttingarnar frá Voke III, framhliðar eru matt beige grábrúnar að lit. Borðplötur eru sérsmíðaðar úr hvítæðóttum Quarts stein með undirlímdum vaski úr stáli. Hreinlætistæki eru frá Grohe, Salerni eru upphengd og með innbyggðum skolkassa í vegg gerð Grohe/Laufen.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir: Bogi Molby Pétursson 6993444 / Molby@fastlind.is
Vegna stöðugrar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég verðmet eignina þína.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaup), 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Lántökugjald af veðskuldabréfi mishátt milli lánastofnuna. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 74.900.kr
Seljendur og kaupendur mínir fá Vildarkort Lindar við undirritun kaupsamnings. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: www.fastlind.is/vildarkort