Elka lgf. S: 863-8813 hjá TORG fasteignasölu kynnir: Gullfallega nýlega 5 herbergja íbúð með sérinngangi merkt 204 á 2. hæð að Eskiás 1A í Ásahverfi Garðabæjar.
Um er að ræða eign sem er skráð 117,9 fm. og skiptist í forstofu/anddyri, rúmgott alrými sem rúmar eldhús, stofu og borðstofu, 4 svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu innan íbúðar.
Frá alrými er útgengt á svalir. Allar innréttingar í eldhúsi eru frá þýska framleiðandanum Nobilia og fataskápar koma frá Trésmiðju GKS.
Göngufæri er í skóla, verslanir, veitingahús, sundlaug og alla helstu þjónustu. Einnig er stutt í góða og vel skipulagða göngu- og hjólastíg við sjávarsíðuna og Gálgahrauninu.
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Elka Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 863-8813 / elka@fstorg.is
Nánari lýsing:
Forstofa/anddyri: Komið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi og háum hvítum fjórföldum fataskáp.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott hjónaherbergi búið vönduðum sérsmíðuðum hvítum háum fataskápum. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi: Að auki hjónaherbergis eru þrjú svefnherbergi með harðparketi á gólfum. Búin hvítum háum fataskápum. Skúffur í fataskápum eru vandaðar með ljúflokun.
Alrými: Rúmgott alrými sem rúmar eldhús, stofu og borðstofu. Frá alrými er útgengt á svalir. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Falleg ljósgrá innrétting með steingrárri borðplötu. Búin efri- og neðri skápum með ljúflokun, blástursofni, spanhelluborði, innbyggðum ísskáp og tengi fyrir uppþvottavél. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, með innbyggðri lýsingu í lofti, hvítri innréttingu með ljúflokun á neðri skúffum, heilsteyptri handlaug í borðplötu,
LED lýstum spegli á vegg, upphengdu salerni, handklæðaofni (Stormberg Laveno), sturtu með hertu gleri og þvottaaðstöðu með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Hvíttað glerskilrúm stúkar af þvottavél og þurrkara. Öll hreinlætistæki eru frá Grohe.
Geymsla: Sérgeymsla er innan íbúðar. Í sameign er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Seljandinn hefur komið fyrir einum af sérsmíðuðum fataskápum svefnherbergjanna inn í geymslu.
Rafbílahleðsla á sameiginlegum bílastæðum.
Nýleg og skemmtileg eign þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, miðbæ Garðabæjar og alla helstu þjónustu ásamt því að vera í göngufæri við Ásgarðslaug (sundlaug Garðabæjar), og aðrar fallegar gönguleiðir meðfram sjávarsíðunni og Gálgahrauninu ásamt því að stutt er í almenningssamgöngur. Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Elka Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 863-8813 / elka@fstorg.is
Áætluð gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign (Getur breyst):
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.