Pétur Ásgeirsson og Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu: Fallegt og vel skipulagt endaraðhús á frábærum stað í Norðlingaholti og er eignin skráð samtals 203,7 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands. Íbúðin er 177,3 fm og bílskúrinn er 26,4 fm sem búið er að breyta í herbergi. Gott fjölskylduhús með 5 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Fasteignamat næsta árs er 152.500.000
Smelltu á linkinn til að skoða íbúðina í 3D// 5 Svefniherbergi.
// Endaraðhús.
// 2 Baðherbergi.
// Tvennar svalir
// 2 Sérafnotareitir
// Heitur pottur
// Mjög stór sameiginlegur garður á milli húsana.
Það sem er nýbúið að gera við húsið nýlega.Ný uppgert baðherbergi uppi.
Nýtt teppi á stiga og sprautað handrið.
Ný bílskúrshurð og opnari
Herbergi í bílskúr.
Parket pússað og lakkað.
Búið að gera við hluta af steining að utan verður kláruð að ári.
Neðri hæð:Anddyri: Er með flotað gólf og með fataslá.
Baðherbergi: Er með flísum á gólfi, upphengt salerni og sturta.
Bílskúr og geymsla: Það er búið að breyta hluta af bílskúrnum í barnaherbergi með fataherbergi, parket á gólfi í herbergi.
Eldhús: Er með stórri eyju, mikið skápapláss bjart og opið með viðarinnréttingu, granítborðplötu, AEG keramik helluborði, bakaraofni og Smeg háfi. Parket á gólfi.
Stofa og borðstofa: Er mjög rúmgóð og björt með parketi á gólfi með útgengi út á hellulagða verönd sem snýr í vestur. Við suðurhlið hússins er búið að gera góða útiaðstöðu, m.a c.a 14,5 óskráðan sólskála með rafmagnspotti og c.a 14,5 fm óskráðan geymsluskúr.
Gengið er upp teppalagðan stiga með kókósteppi.
Efri hæð: Á efri hæð er hol með parketi og er útgengi út á 8 fm svalir sem snúa inn í garðinn.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi og með stórum fataskáp.
Barnaherbergi 1: Parket á gólf og fataslá.
Barnaherbergi 2: Parket á gólfi og með útgengi út á 31,3 fm norðursvalir.
Barnaherbergi 3: Parket á gólfi.
Baðherbergi: Er nýuppgert, flísalagt í hólf og gólf. Með walk in sturtu, glæslileg innrétting með stórum vaski, handklæðaofn, salerni. Baðherbergið er með glugga.
Þvottahús: Flísar á gólfi með innréttingu og vaski. Þvottavél og þurrkari er í vinnuhæð. Gluggi er á þvottahúsi.
Fallegt endaraðhús á frábærum stað við útivistar paradísina Heiðmörk sem í næsta nágrenni og svo er stutt í leik- og grunnskóla í hverfinu.
Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.