DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 13. feb. 2026

Holtsvegur 39

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
111 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
94.900.000 kr.
Fermetraverð
854.955 kr./m2
Fasteignamat
99.500.000 kr.
Brunabótamat
75.220.000 kr.
Mynd af Jóhanna Kristín Gústavsdóttir
Jóhanna Kristín Gústavsdóttir
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2353294
Landnúmer
211961
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
4
Númer íbúðar
03
Svalir
Upphitun
Danfoss
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging

***NÝTT Á SKRÁ*** 

Húsaskjól og Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Fallega og vel skipulagða 4ja herbergja endaíbúð á þriðju hæð (efsta hæð fyrir utan penthouse) í lyftuhúsi í barnvænu hverfi í Urriðaholtinu við Holtsveg 39 í Garðabænum. Yfirbyggðar rúmgóðar svalir ásamt sérmerktu stæði með rafhleðslustöð í opinni bílageymslu. 

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EIGNAVIDEO AF HOLTSVEGI 39


Íbúðin er skráð 111,4 fm að stærð og þar af er geymsla í sameign 8,2 fm að stærð. Eignin skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél, eldhús, stofu og borðstofu sem er eitt opið og bjart rými. Sér geymsla er í sameign.   

Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is 

Nánari lýsing á eign:
Gólfefni íbúðarinnar eru harðparket og flísar. 
Anddyri: Fataskápur úr ljósum við.  
Eldhús/stofa/borðstofa: Er rúmgott opið og bjart alrými með útgengi úr stofu út á góðar yfirbyggðar svalir sem snúa í suðaustur. Eldhúsinnréttingin er frá AXIS með efri og neðri skápum og rúmgóðri eyju og góðu skápaplássi. Borðplötur úr kvartssteini, eldhústæki frá AEG, ofn úr stáli, spanhelluborð, vifta og innbyggð uppþvottavél. 
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskápum úr ljósum við sem ná upp í loft.  
Barnaherbergin eru tvö: Annað með fataskáp úr ljósum við sem nær  upp í loft. 

Baðherbergi: Er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf, innrétting úr ljósum við með skúffum og innbyggðum vask og efri speglaskáp, sturtuklefi með gleri, upphengt salerni. handklæðaofn og innrétting úr ljósum við fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og góðu skápaplássi. Góðir geymsluskápar eru á gangi til móts við baðherbergi.    
Geymsla: Rúmgóð geymsla er í sameign sem er 8,2 fm að stærð. 
Sameign: Hjóla-og vagnageymsla.

Hér er um að ræða fallega og fjölskylduvæna 4ja herbergja búð á þriðju hæð í lyftuhúsi með rúmgóðum yfirbyggðum svölum sem snúa í suðaustur í barnvænu hverfi í Urriðaholtinu í Garðabænum. Leik-og grunnskóli er í göngufæri ásamt ýmissi annarri verslun og þjónustu í Kauptúni. Urriðaholt er þéttbýli í náinni tengingu við nokkur af helstu útivistarsvæðum höfuðborgarsvæðisins, ósnortna náttúru og góðar samgönguæðar. Urriðaholt er fyrsta vistvæna hverfið á Íslandi.

Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
16/11/202054.800.000 kr.57.900.000 kr.111.4 m2519.748 kr.
21/02/201744.350.000 kr.47.500.000 kr.111.4 m2426.391 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringhamar 37, íb. 104 Hlutd.lán
Bílastæði
Opið hús:14. mars kl 14:00-14:30
Hringhamar 37, íb. 104 Hlutd.lán
221 Hafnarfjörður
114.8 m2
Fjölbýlishús
413
701 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 37, Íb. 501
Bílastæði
Opið hús:14. mars kl 14:00-14:30
Hringhamar 37, Íb. 501
221 Hafnarfjörður
83.8 m2
Fjölbýlishús
312
870 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 37, íb. 505 Hlutd.lán
Bílastæði
Opið hús:14. mars kl 14:00-14:30
Hringhamar 37, íb. 505 Hlutd.lán
221 Hafnarfjörður
89.2 m2
Fjölbýlishús
312
830 þ.kr./m2
74.000.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 35, Íb. 309
Opið hús:14. mars kl 14:00-14:30
Hringhamar 35, Íb. 309
221 Hafnarfjörður
98 m2
Fjölbýlishús
312
755 þ.kr./m2
74.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin