DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 14. júlí 2026

Blásalir 8

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
233.3 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
178.800.000 kr.
Fermetraverð
766.395 kr./m2
Brunabótamat
115.900.000 kr.
Byggt 2001
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
22341641
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

LANDMARK kynnir:  Virkilega fallegt og vel skipulagt 233,3 fm, 6 herbergja parhús á útsýnisstað í Salahverfi Kópavogs.  Fjögur svefnherbergi, þar af eitt forstofuherbergi. Gestasalerni við forstofu.  Rúmgóður bílskúr með millilofti.  Aðeins göngufæri í alla helstu þjónustu eins og Salaskóla, leikskólann Fífusali, Nettó, Apótek, heilsugæslu, íþróttaaðstöðu og sundlaug.

*** Nýlegar endurbætur:  Búið er að skipta út halógenperum fyrir LED perur.  Gler og gluggi á gafli nýendurnýjaður ásamt gleri í herbergjum á jarðhæð.  Búið er að endurnýja alla gluggalista og og yfirfara alla glugga og endurbæta eftir þörfum.  Þakrennur nýlegar ásamt snjógildrum.  Nýlega var stofu og eldhúsrými allt málað ***

Gengið er inn í húsið á efri hæð hússins.
Forstofa er flísalögð með góðum fataskápum.  Flísalagt gestasalerni inn af forstofu, þaðan sem er innangengt í bílskúr.
Herbergi við forstofu er með flísum á gólfi.
Eldhúsið er með fallegri viðarinnréttingu með áföstu borði og steini í borðplötu.  Innréttingin er með gaseldavél og ruslkvörn. Útsýni.
Stofan og borðstofan eru í opnu og björtu rými með aukinni lofthæð og parketi á gólfi.  Útgengt út á suðvestursvalir með glæsilegu útsýni.

Neðri hæð:
Rúmgott parketlagt hol er á neðri hæð sem er tilvalið sem sjónvarpsstofa.
Hjónaherbergi er með parketi á gólfi, góðum fataskápum og parketlögðu fataherbergi sem er óinnréttað sem slíkt.
Hin herbergin tvö eru með parketi á gólfi og fataskápum. Bæði rúmgóð.
Baðherbergið er flísalagt með fallegri innréttingu og steyptri sturtu með góðu aðgengi.
Þvottahúsið er mjög rúmgott með innréttingu, flísum á gólfi og glugga.

Bílskúrinn er rúmgóður og vel skipulagður m.t.t. þarfa nútímafjölskyldu.  Ofan bílskúrs og forstofu er milliloft sem nýtist sem geymsla.

Þrjú bílastæði eru framan við húsið með hitalögnum.  Lóðin er mjög snyrtileg.

Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða ss@landmark.is
-----------------------------------------------------------

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
http://www.landmark.is

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Árakur 9
Bílskúr
Opið hús:29. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Árakur 9
Árakur 9
210 Garðabær
248.9 m2
Raðhús
514
828 þ.kr./m2
206.000.000 kr.
Skoða eignina Mardalur 8
Skoða eignina Mardalur 8
Mardalur 8
260 Reykjanesbær
213.8 m2
Raðhús
524
524 þ.kr./m2
112.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 11 íb 103
Opið hús:26. júlí kl 13:00-14:00
Vorbraut 11 íb 103
210 Garðabær
124.2 m2
Fjölbýlishús
413
957 þ.kr./m2
118.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 9
Bílastæði
Opið hús:26. júlí kl 13:00-14:00
Skoða eignina Vorbraut 9
Vorbraut 9
210 Garðabær
87.4 m2
Fjölbýlishús
32
1017 þ.kr./m2
88.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin