DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:15. júlí kl 17:00-17:30
Skráð 8. júlí 2026

Árakur 9

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
248.9 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
206.000.000 kr.
Fermetraverð
827.642 kr./m2
Fasteignamat
182.750.000 kr.
Brunabótamat
130.250.000 kr.
Mynd af Þóra Þrastardóttir
Þóra Þrastardóttir
Fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2297111
Landnúmer
187166
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Tvennar svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignasalan TORG kynnir eignina Árakur 9, 210 Garðabær, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 229-7111 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Árakur 9 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 229-7111, birt stærð 248.9 fm.
Eignin telur samkvæmt teikningu á neðri hæð: Bílskúr, forstofu, stóra geymslu, baðherbergi, eldhús, stofu og borðstofu, á efri hæð: þrjú mjög stór svefnherbergi eitt með fataherbergi inn af, sjónvarpsstofu, baðherbergi og þvottahús. Á efri hæð eru tvennar rúmgóðar svalir og á jarðhæð útgengi á stóra af girta timburverönd.
Vandað og einstaklega vel skipulagt fjölskylduhús á eftirsóttum stað.
Upplýsingar veitir  Þóra Þrastardóttir, lgf. í síma 822-2225 eða thora@fstorg.is 


Sækja söluyfirlit hér

Nánari lýsing; 
Neðri hæð, forstofa með góðum fataskápum og flísum á gólfi. 
Stór geymsla / herbergi með flísum á gólfi.
Baðherbergi er inn af forstofu, flísalagt í hólf og gólf, vönduð HTH innrétting, handklæðaofn og sturtuklefi, hiti í gólfi.
Bílskúr með Epoxy á gólfi, rafmagnshurðaropnara, innréttingu með vaski og tengingum fyrir þvottavél. Þvottaaðstaða fyrir bíl. Innangengt er í bílskúr úr forstofu.
Stofa og borðstofa eru mjög rúmgóðar og tengjast eldhúsi í opnu rými með parketi á gólfi, frá stofu er útgengi á stóra af girta timburverönd.
Eldhús er með vandaðri HTH innréttingu, mikið skápapláss og vönduð AEG tæki, parket á gólfi.
Steyptur stigi er milli hæða er parketlagður og með vönduðu sérsmíðuðu handriði.
Efri hæð: Hjónaherbergi er mjög rúmgott með vel innréttuðu fataherbergi inn af, parket á gólfi og útgengi á stórar svalir til norðurs.
Tvö mjög stór svefnherbergi með fataskápum og parketi á gólfi.
Sjónvarpsstofa sem hægt er að loka og nýta sem fjórða svefnherbergið á hæðinni útgengi á stórar suður svalir.
Baðherbergi er mjög stórt og rúmgott, vönduð HTH innrétting með tveimur vöskum, handklæðaofn og baðkar með sturtuaðstöðu, hiti í gólfi.
Þvottahús með góðri innréttingu og skolvaski, Epoxy efni er á gólfi og hiti í gólfi.
Húsið lítur vel út að utan og er klætt að hluta með flísum og álbáruklæðningu.
Lóð og aðkoma að húsinu er öll frágengin, tvö góð bílastæði eru fyrir framan bílskúr með snjóbræðslukerfi . Stutt er í fallega gróið sameiginlegt leiksvæði og sparkvöll.
Einstaklega vandað og vel skipulagt fjölskylduhús þar sem Hofstaðaskóli, Garðaskóli og FG eru allir í göngu færi og stutt í verslun og þjónustu.

​​​​Allar nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir Löggiltur fasteignasali í síma : 822-2225 eða á thora@fstorg.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
11/05/201046.650.000 kr.36.000.000 kr.248.9 m2144.636 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2007
29.4 m2
Fasteignanúmer
2297111
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
11.000.000 kr.

Myndir (52)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Keldugata 6
Opið hús:09. júlí kl 16:30-17:15
Skoða eignina Keldugata 6
Keldugata 6
210 Garðabær
225.3 m2
Raðhús
734
Tilboð
Skoða eignina Keldugata 10
Opið hús:09. júlí kl 16:30-17:15
Skoða eignina Keldugata 10
Keldugata 10
210 Garðabær
224.4 m2
Raðhús
634
668 þ.kr./m2
150.000.000 kr.
Skoða eignina Lautargata 5 íb. 301
Lautargata 5 íb. 301
210 Garðabær
129.3 m2
Fjölbýlishús
413
981 þ.kr./m2
126.900.000 kr.
Skoða eignina Lautargata 5 íb. 002
Lautargata 5 íb. 002
210 Garðabær
139.3 m2
Fjölbýlishús
413
947 þ.kr./m2
131.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin