DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 12. maí 2026

Þórisstaðir 2

SumarhúsSuðurland/Selfoss-805
96.1 m2
4 Herb.
Verð
20.000.000 kr.
Fermetraverð
208.117 kr./m2
Fasteignanúmer
23173941
Húsgerð
Sumarhús

Borg fasteignasala kynnir frábært sumarbústaðaland (7.685 fm eignarland) i Grímsnesinu.
 
STEYPTUR GRUNNUR · SAMÞYKKTAR TEIKNINGAR · HEILSÁRSVEGUR · GISTIAÐSTAÐA KLÁR
 
Lóðin er að Þórisstöðum í Grímsnes- og Grafningshreppi. 75 km akstur er frá Reykjavík og golfvellir í næsta nágrenni. Lóðin stendur hátt og gott útsýni yfir helstu náttúruperlur Suðurlandsins. Stutt er í Sólheima í Grímsnesi og má segja að sumarhúsasvæðið standi milli Borgar í Grímsnesi og Laugaráss við Skálholt.   
 
Stór hluti af undirbúningsvinnu fyrir nýtt hús á lóðinni er þegar lokið. Steyptur grunnur er kominn, samþykktar teikningar liggja fyrir og lagnir eru tilbúnar. Það eina sem vantar er að reisa draumahúsið. Á meðan á byggingarframkvæmdum stendur geta nýir eigendur nýtt sér fullbúna gistiaðstöðu í sérstæðu húsi sem nú stendur á lóðinni, slakað á í heita pottinum og notið útsýnisins milli verka.
 
Lóðin og útsýnið:
 Lóðin stendur hátt sem tryggir ævintýralegt 360° útsýni á jökla, fjöll og heiðar. Sjóndeildarhringurinn skartar Langjökli, Tindfjöllum, Bláfelli, Hlöðufelli, Bjarnarfelli við Geysi, Hestfjalli og Laugafelli. Búið er að gróðursetja tré á lóðarmörkum hringinn kringum bústaðinn.
 
Fullkomið aðgengi allan ársins hring: Góður vegur liggur að lóðinni. Búið er að útbúa mjög gott aðgengi inn á lóðina með  fullfrágengnu, stóru bílastæði norðan við húsgrunninn sem rúmar 4-6 bíla, auk þess sem þar er hleðslustöð fyrir rafbíla.
 
Steyptur grunnur og lagnir: Tilbúið til framkvæmda:  Húsgrunnur fyrir um 85 fm hús hefur verið steyptur ásamt plötu með ílögðum hitalögnum.  Hægt væri  að fengnu samþykki byggingaryfirvalda að stækka grunninn um 1-1,5 metra til norðurs þar sem þegar hefur verið skipt um jarðveg. Gengið hefur verið frá stórri rotþró ásamt lögnum. Sérstök drenlögn (sem fer ekki í rotþró) hefur verið lögð fyrir þakvatn, frárennsli úr heitum potti og ofnakerfi.
 
Gestahús: (15 fm) Á lóðinni er 15 fm steypt plata með hitalögnum þar sem gestahús hefur verið reist. Húsið er einangrað og plastað (það á eftir að klæða veggi og loft að innan). Búið er að leggja rafmagn, heitt og kalt vatn. Þar er gert ráð fyrir salerni og vaski og í dag eru þar þvottavél og þurrkari. Frábær viðbót sem nýtist sem gistirými eða vinnuaðstaða.
 
Íverustaður: (18 fm) Á aðal húsgrunninum stendur í dag um 18 fm kofi sem er fullkomin dvalaraðstaða á meðan framkvæmdir standa yfir. Það athugast að aðeins er leyfi fyrir honum meðan á húsbyggingu stendur en flytja þyrfti hann af lóðinni þegar hús hefur risið. Húsið fylgir með í kaupunum. Þar er rafmagn, heitt og kalt vatn, klósett, sturta, eldunaraðstaða og svefnpláss. Kofinn stendur á súlum og er auðvelt að aftengja hann og flytja á brott (eða selja) þegar búið er að byggja nýtt hús. 
 
Heitur pottur og pallur: Vestan við gestahúsið heitur pottur. Hann er tengdur hitaveitu með síma-fjarstýringu (snjallstýringu) þannig að potturinn getur verið heitur þegar komið er á staðinn. Frárennsli frá ofnakerfi nýtist beint í pottinn. Snyrtilegur pallur er umhverfis pottinn sem tengist yfir á húsgrunninn og að kofanum.
 
Allt er klárt fyrir byggingarframkvæmdir og búið að samþykkja teikningar. 
 
Hér er á ferðinni algjör drauma eign fyrir þá sem vilja sleppa við þyngstu og dýrustu undirbúningsvinnuna við sumarbústaðabyggingu, en vilja um leið geta hafið dvalir á lóðinni frá fyrsta degi. Sjón er sögu ríkari.

Allar nánari upplýsingar veita:
Börkur Hrafnsson í síma 892-4944, borkur@fastborg.is
Ingimar Ingimarsson í síma 861-8458,  ingimar@fastborg.is 

 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Borg fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grensás 22
Skoða eignina Grensás 22
Grensás 22
805 Selfoss
113.9 m2
Sumarhús
43
719 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Dynjandisvegur 16
Opið hús:11. júlí kl 13:00-13:30
Dynjandisvegur 16
806 Selfoss
112.1 m2
Sumarhús
413
624 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina A-Gata 8
Skoða eignina A-Gata 8
A-gata 8
805 Selfoss
100.2 m2
Sumarhús
54
589 þ.kr./m2
59.000.000 kr.
Skoða eignina Heiðarimi 22
Skoða eignina Heiðarimi 22
Heiðarimi 22
805 Selfoss
44 m2
Sumarhús
12
Fasteignamat 27.850.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin