STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Um er að ræða bjarta og opna 88,1 fm 3ja herbergja íbúð á 5. hæð í snyrtilegu lyftuhúsi. Íbúðin er mjög björt með gólfsíðum gluggum í stofu, tvennar svalir og veggir ná ekki alls staðar upp í loft og gler aðskilur restina til þess að hleypa birtu inn í íbúðina. Tvennar geymslur ein á hæð og önnur í kjallara. Ekki er langt síðan að eldhús var endurnýjað. Tvær lyftur eru í húsinu, húsvörður, nýlegur myndavéladyrasími ásamt eftirlitsmyndavélakerfi í sameign og hleðslustöðvar á plani fyrir rafmagnsbíla.
Íbúðin er 82,6 fm (merkt 01-0502), geymsla á hæð er 2,6 fm (merkt 01-0505) og geymsla í kjallara er 2,9 fm (merkt 01-0002) samtals er eignin 88,1 fm skv skráningu Þjóðskrá Íslands.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.isForstofa er með parketi á gólfi og skápur.
Hol er með parketi á gólfi og skápur.
Stofa er rúmgóð með parketi á gólfi og gólfsíðum gluggum og þaðan er útgengt á suðursvalir.
Eldhús er með parketi á gólfi og hvítri snyrtilegri innréttingu.
Svefnherbergin eru tvö og eru með parketi á gólfum og skápum, úr aðalsvefnherbergi er útengt á litlar austursvalir.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og mósaíkflísum á veggjum, sturtuklefi, wc, skápur, vaskur og gluggi með opnanlegt fag.
Þvottahús er á efstu hæð hússins.
Geymsla er í sameign í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign í kjallara.