Glæsilegt 200,4 m² einbýlishús með fallegri hjónasvítu, tvöföldum bílskúr og rúmgóðri verönd. - Þrjú svefnherbergi
- Hjónasvíta með sérbaðherbergi
- Innbyggður 62,2 m² tvöfaldur bílskúr
- Um 130 m² timburverönd með skjólveggjum
Nánari upplýsingar veita:Andrea Ósk Harradóttir astmf. í S: 785-6698 eða andrea@palssonfasteignasala.is
Birt stærð eignar er 200,4 m² samkv. HMS.Eignin skiptist í anddyri, gang, eldhús, stofu / borðstofu, hjónaherbergi með sérbaðherbergi, tvö önnur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.Nánari lýsing eignar:Anddyri: Bjart og snyrtilegt anddyri með flísum á gólfi og góðum þreföldum fataskáp. Frá anddyri er gengið inn í þvottahús og þaðan áfram inn í bílskúr.
Gangur: Gangur tengir rými eignarinnar vel saman og er harðparket á gólfi.
Eldhús: Fallegt og rúmgott eldhús sem er hluti af opnu alrými með stofu og borðstofu. L-laga innrétting með eyju og helluborði, ofni og örbylgjuofni í vinnuhæð, innbyggðri uppþvottavél og búrskáp. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu. Harðparket er á gólfi.
Stofa / borðstofa: Rúmgott og bjart alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda eina fallega heild. Úr stofunni er útgengt á um 130 m² timburverönd með skjólveggjum sem liggur meðfram suður- og vesturhlið hússins. Vegghengdur skápur í stofu fylgir eigninni. Harðparket er á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með sexföldum fataskáp og sérbaðherbergi inn af sem saman mynda glæsilega hjónasvítu. Harðparket er á gólfi.
Baðherbergi inn af hjónaherbergi: Fallegt og vel útbúið baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Þar er vaskinnrétting, speglaskápur, upphengt salerni og baðkar. Gluggi hleypir inn góðri náttúrulegri birtu.
Svefnherbergi II: Bjart og rúmgott svefnherbergi með fjórföldum fataskáp og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi III: Bjart og rúmgott svefnherbergi með tvöföldum fataskáp og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: Fallegt og vel útbúið baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Þar er vaskinnrétting, speglaskápur, upphengt salerni og „walk-in“ sturta. Gluggi hleypir inn náttúrulegri birtu og þaðan er útgengt beint á verönd.
Þvottahús: Rúmgott og vel skipulagt þvottahús með flísum á gólfi. Þar er innrétting með vaski og upphækkun fyrir tvær vélar. Gluggi er í rýminu og innangengt þaðan í bílskúr.
Bílskúr: Sérlega rúmgóður 62,2 m² tvöfaldur bílskúr með epoxy á gólfi. Tvær bílskúrshurðir eru með rafrænni opnun. Inntak og gólfhitagrind eru í bílskúrnum, ásamt snjóbræðslustýringu, hitastýringu og hleðslustöð fyrir rafbíla. Gönguhurð er á móti inngangi hússins og innangengt er úr bílskúr í þvottahús.
StaðsetningBorg í Grímsnesi er vaxandi byggðakjarni í mikilli uppbyggingu. Frá eigninni er stutt að ganga í helstu þjónustu á Borg, þar á meðal leik- og grunnskóla, sundlaug og íþróttamiðstöð. Selfoss er í um 15–20 mínútna akstursfjarlægð þar sem fjölbreytt verslun og öll helsta þjónusta er til staðar.
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.