DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 24. okt. 2026

Dælengi 17

EinbýlishúsSuðurland/Selfoss-800
188 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
82.000.000 kr.
Fermetraverð
436.170 kr./m2
Fasteignamat
88.350.000 kr.
Brunabótamat
91.450.000 kr.
Mynd af Andrea Ósk Harradóttir
Andrea Ósk Harradóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1975
Garður
Pallur
Bílskúr
Á einni hæð
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2185678
Landnúmer
161974
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Óvitað
Raflagnir
Endurnýjaðar að hluta
Frárennslislagnir
Óvitað
Gluggar / Gler
Að mestu upprunalegir skv seljanda
Þak
Þak endurnýjað árið 2023. Skipt var um þakjárn, klætt undir þak og þakkantur endurnýjaður ásamt nýrri klæðningu undir þakkanti.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Pallur
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Tveir inngangar
Rúmgott og bjart 188,0 fm einbýlishús með stórum, grónum suðurgarði, sambyggðum bílskúr og fjölbreyttum möguleikum í fjölskylduvænu hverfi á Selfossi.
  • Eign með mikinn karakter og spennandi framtíðarmöguleika.
  • Þrjú rúmgóð svefnherbergi og tvö baðherbergi, með möguleika á allt að fimm svefnherbergjum.
  • Stór og gróinn suðurgarður.
  • Sambyggður 45,8 fm bílskúr.
Samkvæmt skráningu HMS er íbúðarhúsnæðið 142,2 m² að stærð, auk 45,8 m² sambyggðs bílskúrs. Heildarstærð eignarinnar er því 188,0 m².

Nánari upplýsingar veita:
Andrea Ósk Harradóttir Lgf. í S: 785-6698 eða andrea@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur


Eignin skiptist í forstofu, gestasnyrtingu, þrjú svefnherbergi, sjónvarpshol, bjarta stofu og borðstofu, eldhús, baðherbergi, þvottahús með sérinngangi og sambyggðan bílskúr.
Nánari lýsing eignar
Forstofa: Flísalögð forstofa með fallegri viðarútidyrahurð og skrautgleri sem gefur rýminu sérstakan karakter. Gestasnyrting og svefnherbergi eru staðsett við forstofuna.
Gestasnyrting: Flísalögð snyrting við forstofu.
Svefnherbergi: Bjart og rúmgott svefnherbergi við forstofu, með parketi á gólfi.
Sjónvarpshol: Opið og notalegt sjónvarpshol með parketi á gólfi sem nýtist vel sem sjónvarps- eða setuaðstaða. Möguleiki er á að loka rýminu af og nýta sem viðbótarsvefnherbergi.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með upptekinni lofthæð og stórum gluggum sem hleypa ríkulegri dagsbirtu inn. Parket er á gólfi og falleg tenging við borðstofu.
Borðstofa: Rúmgóð borðstofa með parketi á gólfi og stórum gluggum sem veita fallega sýn út í gróinn garðinn. Frá borðstofu er útgengt á verönd við húsið.
Eldhús: Bjart og rúmgott eldhús með hvítri innréttingu, góðu skápaplássi og vinnuaðstöðu. Rúmgóður borðkrókur er við glugga. Parket er á gólfi.
Hjónaherbergi: Sérlega rúmgott og bjart hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp. Stór gluggi veitir fallega sýn út í garðinn og þaðan er einnig útgengt á verönd.
Svefnherbergi: Sérlega rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi og gluggum sem snúa að gróðursælum garðinum. Herbergið var áður tvö aðskilin herbergi og býður upp á möguleika á að skipta því aftur upp.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi í hlýlegum, eldri stíl með ljósum, mynstruðum flísum sem gefa rýminu sérstakan karakter. Þar er baðkar með sturtuaðstöðu, salerni og innrétting með góðu geymsluplássi.
Þvottahús: Flísalagt þvottahús með sérinngangi, innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara ásamt búrskáp.
Bílskúr: Sambyggður 45,8 fm bílskúr með flísalögðu gólfi, bílskúrshurð með opnara og gönguhurð út á baklóð.
Garður og útisvæði: Stór og gróinn suðurgarður með fjölbreyttum trjágróðri sem skapar fallega og notalega umgjörð um húsið. Við húsið er steypt verönd undir þakskeggi með aðgengi frá bæði borðstofu og hjónaherbergi. Hellulögð innkeyrsla með hitalögnum er framan við húsið.

Endurbætur og viðhald
Árið 2023 var þak íbúðarhússins endurnýjað. Skipt var um þakjárn, klætt undir þak, þakkantar endurnýjaðir og klætt undir þá, sperruendar endurnýjaðir og nýjar þakrennur settar upp.
Árið 2020 var skipt um þakjárn og klætt undir þak á bílskúr. Raflagnir hafa einnig verið endurnýjaðar að hluta samkvæmt upplýsingum seljenda.
Athugasemdir um ástand eignar:
Samkvæmt ástandsyfirlýsingu seljenda er halli á gólfi í stofu og barnaherbergi, sem var þegar til staðar við kaup seljenda árið 2012. Þá hafa komið fram rakamerki við glugga í stofu og hjónaherbergi. Nánari upplýsingar um ástand eignarinnar koma fram í ástandsyfirlýsingu seljenda sem fylgir sölugögnum.

Staðsetning
Dælengi 17 er staðsett í grónu og fjölskylduvænu hverfi á Selfossi. Stutt er í grunnskóla, leiksvæði, íþróttaaðstöðu, sundlaug og fjölbreytta þjónustu í miðbæ Selfoss.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
24/05/201225.000.000 kr.25.900.000 kr.188 m2137.765 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1975
45.8 m2
Fasteignanúmer
2185678
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
15.300.000 kr.

Myndir (52)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tungurimi 3
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Tungurimi 3
Tungurimi 3
806 Selfoss
178,8 m2
Einbýlishús
423
425 þ.kr./m2
76.000.000 kr.
Skoða eignina Mýrarland 14
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Mýrarland 14
Mýrarland 14
800 Selfoss
176,7 m2
Einbýlishús
524
622 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Heiðarbraut 5d
Heitur pottur
Skoða eignina Heiðarbraut 5d
Heiðarbraut 5d
230 Reykjanesbær
175,2 m2
Raðhús
715
490 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Klapparstígur 7
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Klapparstígur 7
Klapparstígur 7
260 Reykjanesbær
172,3 m2
Einbýlishús
514
540 þ.kr./m2
93.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin