AÐALSTRÆTI 16. Einstaklega falleg og rúmgóð íbúð, efri hæð og ris, í einu af fallegustu húsum bæjarins. Hátt til lofts og vítt til veggja og góður andi er í húsinu. Útsýni til fjalla. Sólríkar og skjólgóðar suðursvalir.
Einstakt hús í hjarta Innbæjarins, sem er elsti hluti bæjarins með mikla sögu og sjarma. Húsið er í göngufæri við leikhúsið og miðbæinn og steinsnar er á flugvöllinn, í Skógarböðin og í Sundlaug Akureyrar. Húsið var endurnýjuð frá grunni að utan sem innan á árunum 1992-4 og var mjög haganlega að allri vinnu staðið til að viðhalda upprunalegu útliti hússins. Hólmsteinn Snædal sá um verkið, en hann á heiðurinn af endurbyggingu á mörgum þeim gömlu húsum sem margir þekkja, t.d. í göngugötunni á Akureyri.
Á árunum 2021 til 2024 stóð húsfélagið fyrir umfangsmikilli viðhaldsvinnu að utan og húsið allt málað, gluggar, veggir og þak, með styrk frá húsafriðunarnefnd. Samtals er eignin 173,4 fm. Með eigninni fylgir einnig 50% hlutur í Aðalstræti 18 fnr. 233-7892, einbýlishúsalóð sem hefur verið notuð sem bílastæði fyrir eigendur Aðalstrætis 16. Pláss er fyrir fjóra bíla. Nánari lýsing: Gengið er inn í íbúðina af verönd á norð-austur horni hússins. Útihurð í gömlum stíl. Þar er komið inn í flísalagða forstofu. Fallegur stigi er upp á hæðina með handbragði Hólmsteins á veggjum. Lítið þvottahús er á stigapalli á hæðinni. Aðalhæð íbúðarinnar skiptist í þrjú svefnherbergi, stofu og eldhús, borðstofu og hol í einu opnu rými. Upprunalegar gólffjalir eru á hæðinni að mestu og hafa þær verið pússaðar upp. Upprunalegar loftfjalir eru í loftum og á veggjum eru brjóstlistar og veggfóður á hluta. Á eldhúsi eru nýrri gólffjalir og á baðherbergi er dúkur. Á baðherbergi er baðkar og eru öll tæki á baði í gömlum stíl. Í eldhúsi er sérsmíðuð innrétting og úr borðstofu er farið út á svalir til suðvesturs. Úr holi er stigi upp í ris sem er skráð 48,7 fm, en nýtanlegir fermetrar eru töluvert fleiri undir súð. Risið er að mestu eitt stórt opið rými en þar er þó stúkað af eitt svefnherbergi og lítið salerni. Í risinu væri auðvelt að fjölga svefnherbergjum. Gólffjalir eru þar á gólfum og bitarnir í loftinu sjást sem setur skemmtilegan svip á risið. Allur frágangur er til fyrirmyndar og góð halogen lýsing er í risinu. Risið skiptist annars í eitt svefnherbergi, lesstofu, sjónvarpshol, salerni og skrifstofu- og gestarými/svefnpláss. Lóðin er stór, skráð 2.217fm og er eignarlóð í sameign með íbúð á neðri hæð. Stærstur hluti hennar er brekkan austan við húsið, en auk þess er garðflöt sunnan við húsið. Annað: - Við endurbyggingu hússins á árunum 1992-4 var skipt um alla klæðningu að utan, alla glugga, járn á þaki, útihurðir, allar lagnir og ofna í húsinu. - Útihurðin er í gömlum stíl en innihurðir og svalahurð eru upprunalegar. - Sameiginleg útigeymsla er undir svölunum á austurhlið hússins. - Húsið er friðlýst að utan og hægt að sækja styrki til viðhalds þess skv. lögum um húsafriðun.
- Húseignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu ehf. Nánari upplýsingar veita: Begga s: 845-0671 / begga@eignaver.is Arnar s: 898-7011 / arnar@eignaver.is Tryggvi s: 862-7919 / tryggvi@eignaver.is

Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
04/05/2017
33.000.000 kr.
38.000.000 kr.
173.4 m2
219.146 kr.
Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.