Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna:
Einstaklega fallega og töluvert endurnýjaða 93,1 fm íbúð á fyrstu hæð með þremur svefnherbergjum.
Eignin samanstendur af góðri forstofu, baðherbergi, þremur svefnherbergjum, eldhúsi, stofu/borðstofu með útgengi á suðursvalir ásamt geymslu í kjallara og aðgengi að sameiginlegu þvottahúsi, hjóla- og vagnageymslu.
Húsfélagið er mjög virkt, vel rekið og tekið á málum jafnt og þétt, hægt er að fá mjög nákvæma samantekt og nánari upplýsingar hjá fasteignasala.
Nánari lýsing:
Gengið er inn í rúmgóða forstofu með flísum og fata-hengi/skáp. Til vinstri er baðherbergið, nútímalegt, flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtu, upphengt salerni, nýlegar skápainnréttingar ásamt vask og speglaskáp. Barnaherbergi er rúmgott með fataskáp, parket á gólfi. Herbergi við hliðina á eldhúsinu er með gólfsíðum glugga, fallegu útsýni og nýtt í dag sem skrifstofa, parket á gólfi. Eldhúsið er með innréttingu á tveimur gagnstæðum veggjum, efri og neðri skápar, gott bekkjapláss og var innréttingin sprautulökkuð 2020, borðkrókur fyrir matarborð er í eldhúsi og parket á gólfi. Hjónaherbergið er rúmgott með stórum fataskáp og parketi á gólfi. Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð, parket á gólfi og útgengt á skjólríkar suðursvalir sem snúa út að garði hússins. Geymsla er í kjallara og er hún 3,6 fm að stærð, með hillum. Sameiginlegt þvottahús er í kjallara þar sem hver íbúð hefur tengi fyrir sína þvottavél og mikið af snúrum til að þurrka þvott. Einnig er sameiginleg vagna- og hjólageymsla í kjallaranum.
Virkilega falleg og eiguleg eign sem er einstaklega vel staðsett á jaðri Laugardalsins, stutt í skóla, íþróttaiðkun, sund, þjónustu og fallegar gönguleiðir með ströndinni.
Pöntun á skoðun og nánari upplýsingar fást hjá:
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899 0720
Netfang: hrannar@domusnova.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.