DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 11. sept. 2026

Skagabraut 82

EinbýlishúsSuðurnes/Garður-251
228.4 m2
6 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
82.900.000 kr.
Fermetraverð
362.960 kr./m2
Fasteignamat
81.250.000 kr.
Brunabótamat
90.650.000 kr.
Mynd af Elín Frímannsdóttir
Elín Frímannsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1935
Geymsla 44m2
Garður
Svalir
Pallur
Fasteignanúmer
2095893
Landnúmer
130747
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað - eldri ofnalagnir í stofu.
Raflagnir
Endurnýjað að hluta.
Frárennslislagnir
Endurnýjað 1994
Gluggar / Gler
Búið að endurnýja mikið og nýlega málaðir
Þak
Endurnýjað
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
suð-vestur
Upphitun
Hitaveita
Kvöð / kvaðir
Hverfisvernd á fjörum vegna einstaks lífríkis og fjölskrúðugs fuglalífs. Ekki er gert ráð fyrir byggð eða öðrum mannvirkjum í fjörum nema með heimild bæjarstjórnar og skulu þá landnotkun, mannvirkjagerð og umgengni útfærðar nánar í deiliskipulagi. Taka þarf tillit til þeirra nota sem strandlengjan hefur á viðkomandi stað, s.s. vistkerfi, útivist og minjar. Umferð vélknúinna ökutækja er bönnuð í fjörum, nema með sérstöku leyfi bæjaryfirvalda.

Svæðið er innan hverfisverndarsvæða HV-5 og HV-7 og skulu allar framkvæmdir taka mið af ákvæðum hverfisverndar (þ.e. innan marka hverfisverndar). Svæðið er einnig að hluta á svæði sem skilgreint er sem önnur náttúruvernd ÖN-1 og skulu allar framkvæmdir á þeim svæðum taka mið af annarri náttúruvernd.
ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu Skagabraut 82, Grund, 250 Garði - einstaklega skemmtilega eign á rúmgóðu eignarlandi við Garðskaga.
Hér er sannkölluð sveit í bæ, þar sem rúmgott eignarland, nálægð við sjóinn og stórbrotið útsýni skapa einstaka umgjörð. Eignin stendur skammt frá Garðskagavita og sjávarsíðuna, með víðsýni til allra átta, meðal annars í átt að Snæfellsjökli og yfir glæsilegan fjallahringinn.
Stutt er niður að sjó og í göngufæri við fallega sandströnd. Garðskagi er þekktur fyrir stórbrotið sólarlag, norðurljósadýrð, fjölbreytt fuglalíf og einstaka náttúrufegurð. Þrátt fyrir friðsælt og sveitalegt yfirbragð er stutt í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla og sundmiðstöð.


Nánari upplýsingar veitir Elín Frímannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8674885, tölvupóstur elin@allt.is.

Nánari lýsing:

Húsið er á þremur hæðum; kjallara, miðhæð og risi. Fasteignin er skráð samkvæmt fasteignaskrá samtals 228,0 m², þar af er 44,0 m² sérgeymsla á lóð. Íbúðarhlutinn skiptist samkvæmt fasteignaskrá þannig að kjallari er 70,4 m², miðhæð 65,4 m² og ris 48,6 m².
Innangengt er inn á miðhæð og kjallara og opnað hefur verið upp í risið frá miðhæð. Árið 1994 var kjallarinn steyptur og eldri hluti hússins hýfður á kjallarann og viðbygging byggð, sem hýsir andyri, búr og salerni.
Kjallari
Í kjallara eru þrjú björt svefnherbergi, hol við stiga, fataherbergi, baðherbergi ásamt þvotta- og tæknirými.
Tveir útgangar eru úr kjallara, annars vegar úr þvotta- og tæknirými til vesturs og hins vegar úr svefnherbergi til austurs. Innveggir í kjallara eru gipsklæddir.
Miðhæð
Á miðhæð er anddyri, salerni, geymsla, eldhús og rúmgóð L-laga stofa.
Nýrri hluti hæðarinnar, sem kom til þegar húsið var flutt, er með steyptri gólfplötu og þar eru anddyri, salerni og geymsla. Eldri hluti hæðarinnar skiptist í eldhús og stofu.
Með eigninni fylgir gegnheilt parket sem ætlað er á miðhæð hússins.
Ris
Rishæðin er rúmgott og opið rými með tveimur veglegum kvistum. Risið hefur verið einangrað og loft klædd, bæta mætti upphitun en einn ofn er þar.
Úr risinu er gengið út á svalir/verönd yfir viðbyggingu hússins sem snýr til vesturs í átt að Garðskagafjöru. Þar er einstaklega fallegt útsýni og góð aðstaða til að njóta kvöldsólar og sjávarútsýnisins.

Endurbætur og framkvæmdir
Töluverðar endurbætur hafa verið gerðar á eigninni. Samkvæmt ástandsyfirlýsingu seljanda hafa frárennslislagnir verið endurnýjaðar. Vatnslagnir hafa að mestu verið endurnýjaðar, þó eldri ofna lagnir séu enn í stofu, og raflagnir hafa verið endurnýjaðar að undanskildum tenglum í stofu.
Á árunum 2018-2019 var sett ál á þakið. Árið 2022 voru allir gluggar yfirfarnir og samkvæmt seljanda er um 80% af gleri nýtt. Gluggar voru málaðir að utan árið 2024.
Á árunum 2022-2023 var húsið allt klætt að utan með áli og einangrað með steinull. Jafnframt voru allar þakrennur endurnýjaðar. Svalir voru smíðaðar á árunum 2024-2025 og árið 2026 var ljósleiðari lagður í húsið.
Skemma/bílgeymsla og frekari uppbygging
Teikningar að nýrri skemmu fylgja með eigninni, en fyrirhugað er að hún rísi þar sem núverandi geymsla stendur. Búið er að steypa sökkul fyrir skemmuna og mikið magn byggingarefnis fylgir einnig með.
Þetta, ásamt rúmgóðu eignarlandinu, skapar áhugaverða möguleika fyrir kaupanda sem vill halda áfram uppbyggingu eignarinnar.

Helstu kostir eignarinnar:
Rúmgott eignarland (nákvæm stærð liggur ekki fyrir, land óhnitsett)
Einstök staðsetning við Garðskaga og sjávarsíðuna
Víðáttumikið útsýni til allra átta
Stutt í fallega sandströnd
Þrjú svefnherbergi
Rúmgott ris með tveimur kvistum
Svalir/verönd til vesturs með fallegu útsýni
44 m² sérgeymsla á lóð
Húsið klætt að utan með áli og einangrað með steinull
Endurnýjaðar þakrennur
Mikið endurnýjaðar lagnir og rafmagn
Stór hluti glers endurnýjaður
Ljósleiðari
Gegnheilt parket fyrir miðhæð fylgir með
Teikningar að fyrirhugaðri skemmu fylgja
Búið að steypa sökkul fyrir skemmuna og mikið magn byggingarefnis fylgir með
Einstök náttúra, fuglalíf, sólarlag og norðurljós
Sveit í bæ en jafnframt stutt í alla helstu þjónustu

Skagabraut 82 er einstök eign fyrir þá sem vilja njóta rýmis, náttúru og nálægðar við sjóinn án þess að fórna nálægð við þjónustu. Rúmgott eignarland, fallegt útsýni, umfangsmiklar endurbætur og möguleikar til frekari uppbyggingar gera eignina að sérstaklega áhugaverðum kosti á þessum fallega stað við Garðskaga.
Eignarlandið hefur ekki verið hnitsett né merkjalýst og liggur nákvæm stærð þess því ekki fyrir. Samkvæmt skráningu hjá HMS er það 3.000 m², en eldri heimildir benda til að raunstærð geti verið önnur eða nær 8000 m².


Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
08/06/202243.700.000 kr.19.000.000 kr.228.4 m283.187 kr.Nei
05/03/202143.700.000 kr.14.000.000 kr.228.4 m261.295 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1978
44 m2
Fasteignanúmer
2095893
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
10.700.000 kr.

Myndir (38)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Blikatjörn 6
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Opið hús:17. sept. kl 18:00-18:30
Skoða eignina Blikatjörn 6
Blikatjörn 6
260 Reykjanesbær
207 m2
Einbýlishús
413
570 þ.kr./m2
117.900.000 kr.
Skoða eignina Stórikriki 25
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Stórikriki 25
Stórikriki 25
270 Mosfellsbær
226.7 m2
Einbýlishús
514
790 þ.kr./m2
179.000.000 kr.
Skoða eignina Axlarás 52
Skoða eignina Axlarás 52
Axlarás 52
221 Hafnarfjörður
213.8 m2
Raðhús
614
748 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Skoða eignina Axlarás 54
Skoða eignina Axlarás 54
Axlarás 54
221 Hafnarfjörður
213.8 m2
Raðhús
614
748 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin