Rúmgóð og björt 3-4 herbergja íbúð á 8. hæð í góðu lyftuhúsi með stæði í bílageymslu miðsvæðis í Smárahverfi Kópavogs. Glæsilegt útsýni er úr eigninni sem er staðsett nálægt allri helstu þjónustu.
** Tvö rúmgóð svefnherbergi og auðvelt að bæta því þriðja við.
** Glæsilegt útsýni
** Hús vel viðhaldið og snyrtileg sameign
** Tvær lyftur
** Stæði í bílageymslu
Nánari upplýsingar veita:Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð eignar skv. HMS er 120,2m2, þar af geymsla 5,1m2 og bílskýli 11,5m2.
Eignin skiptist í anddyri/hol, 2 svefnherbergi, eldhús, setkrók, stofu, borðstofu, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Nánari lýsing
Anddyrir/hol er með góðum fataskáp og hirslum. Parket á gólfi
Svefnherbergi I er rúmgott með fataskápum. Dúkur á gólfi.
Svefnherbergi II er með dúk á gólfi.
Eldhús er með viðarinnréttingu með góðu skápaplássi og flísum milli efri og neðri skápa, dökkri borðplötu, bakaraofni, helluborði og viftu. Eldhúskrókur með glugga út á svalir. Flísar á gólfi.
Stofa er rúmgóð og björt með góðum gluggum með glæsilegu útsýni og útgengi út á svalir sem eru yfirbyggðar að hluta. Parket á gólfi.
Borðstofa er í opnu rými með stofu og er samkvæmt teikningu svefnherbergi en var opnað og auðvelt væri að útbúa herbergi að nýju. Parket á gólfi.
Setkrókur tengir saman eldhús og borðstofu. Parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með hvítri innréttingu, handlaug, salerni og sturtu.
Þvottahús er með vinnuborði og hillum. Flísar á gólfi.
Geymsla, 5,1m2, er í sameign og hver íbúð hefur einnig aðgengi að dekkjageymslu.
Bílastæði í bílageymslu.
Athygli er vakin á því að eigninni hefur verið breytt frá upprunalegum teikningum og bætt hefur verið inn húsgögnum á nokkrar myndir með aðstoð tölvutækni til þess að gefa kaupendum hugmynd um nýtingu rýma.
Eignin getur verið laus við kaupsamning.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.