BJARNÝ BJÖRG LGF & RE/MAX KYNNA:Vel skipulögð og björt 3ja herbergja ( 85,1 fm) íbúð á jarðhæð með sérinngangi í fjórbýli við Rauðalæk 20 Reykjavík. Um er að ræða skemmtilega eign við þessa eftirsóttu götu í Laugardalnum þar sem stutt er í alla þjónustu, leik- og grunnskóla ásamt Laugardalnum.
Nánari lýsing: Eignin er skráð 85,1 fm hjá þjóðskrá Íslands. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, stofu, hjónaherbergi, herbergi sem er tengt stofu, eldhús, baðherbergi og geymslu.
Forstofa er flísalögð.
Hol er rúmgott, gott fatahengi og harðparket á gólf. Úr holi er gengið í önnur rými íbúðarinnar.
Stofan björt og rúmgóð með góðum gluggum, harðparket á gólfi.
Eldhús er með snyrtilegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi rúmgott með góðum nýlegum skápum og harðparket á gólfi.
Svefnherbergi með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt, gólf og veggir, rúmgóð innrétting, sturtu og gluggi.
Geymsla er inn af holi með góðu hilluplássi. Úr geymslu er innangengt í snyrtilegt þvottahús í sameign.
** SMELLTU HÉR og skoðaðu MYNDBAND um eignina**Allar nánari upplýsingar veitir:
Bjarný Björg Arnórsdóttir, lgf., í síma 694-2526 eða á bjarny@remax.isFramkvæmdir á eigninni samkvæmt fyrrum seljanda:
- Húsið var múr, sprunguviðgert og málað árið 2020
- Það var drenað í kringum húsið árið 2011
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.500 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. sjá nánari upplýsingar um gjaldskrá á heimasíðu lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk