DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 13. mars 2026

Reykás 22

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
164.5 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
99.900.000 kr.
Fermetraverð
607.295 kr./m2
Fasteignamat
96.900.000 kr.
Brunabótamat
81.650.000 kr.
Mynd af Aðalsteinn Bjarnason
Aðalsteinn Bjarnason
Löggiltur fasteignasali
Garður
Fasteignanúmer
2046385
Landnúmer
111492
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta (2025) - Baðherbergi íbúðar
Raflagnir
Endurnýjað að hluta - Rafmagnstafla í íbúð
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta (2024) - Gluggar og gler á suðurhlið
Þak
Endurnýjað að hluta (2024) - Þakskegg
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Suður svalir (c.a 9 m2)
Lóð
7,54
Upphitun
Hitaveita - Danfoss
Gallar
Tveir þakgluggar(óopnanlegir) á suðurhlið óþéttir. Lak inn í desember. Búið er að finna verktaka í það sem er byrjaður á íbúð í nr.24. Lekið gegnum þakkant við þakrennur á suðurhlið á 22 yfir svölum. Búið að láta Verksýn vita sem fylgir eftir framkvæmdum á þakkanti.
Fasteignasalan TORG kynnir í sölu afar bjarta og rúmgóða 5 herbergja íbúð á tveimur hæðum í litlu fjölbýli við Reykás 22 í 110 Reykjavík.  Um er að ræða afar spennandi íbúð í rólegu barnvænu hverfi á þessum vinsæla stað í Seláshverfi Árbæjar.  Eignin skiptist í afar rúmgott alrými með mikilli lofthæð, útgengi á suðursvalir og rúmar auðveldlega borðstofu, stofu og opið eldhús með góðu skápa og skúffuplássi í hvítri U-laga innréttingu, en svo telur eignin fjögur svefnherbergi (tvö uppi og tvö niðri), nýlegt og mjög smekklegt baðherbergi með þvottaaðstöðu auk geymslu inn af sameignargangi niðri.  Á allri íbúðinni er fallegt harðparket, utan baðherbergis þar sem eru flísar. Þessu til viðbótar er staðsetningin og allt umhverfið í kring frábær fyrir unga stækkandi fjölskyldu, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, hreyfingu, íþróttir og fleira. Hafið samband við Aðalstein Bjarnason lgf. í síma 773-3532 eða adalsteinn@fstorg.is fyrir nánari upplýsingar og skoðun.

Eignin Reykás 22 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 204-6385, birt stærð 164.5 fm, þar af er neðri hæð íbúðar 117,1 m2 og efri hæð 40,2 m2(íbúð samtals 157,3 m2), svo er geymsla 7,7 m2.

Nánari lýsing og skipting eignarhluta:
NEÐRI HÆÐ:
Forstofa er með parket á gólfi og fataskáp með rennihurðum.
Alrými er til hliðar við forstofu og er afar rúmgott með mikilli lofthæð og rúmar auðveldlega setustofu, borðstofu og opið eldhús. Parket á gólfi og útgengi á svalir til suðurs.
Eldhús í alrými er með stílhreina hvíta U-laga innréttingu og nýleg eldunartæki. Nægt skápa og skúffupláss, bökunarofn í vinnuhæð og stórt vinnuborð við og í kring um helluborð.
Borðstofan er staðsett við hliðina á eldhúsi með nægt pláss fyrir stórt borðstofuborð.
Stofan er í hinum enda alrýmis með glugga í tvær áttir og útgengi á svalir.
Svalir eru langar og snúa í suður, c.a. 9 m2 að stærð.
Hol er rúmgott inn af forstofu með stórum skáp með rennihurðum. Hringstigi á milli hæða.
Svefnherbergi (I) er inn af holi með parketi á gólfi og vönduðum fataskáp.  Stór gluggi með stóru opnanlegu fagi.
Svefnherbergi (2) er inn af holi með parketi á gólfi og fataslá.  Stór gluggi með stóru opnanlegu fagi.
Baðherbergi er inn af holi við stiga og hefur nýlega verið endurnýjað að fullu.  Fallegt standandi baðkar ásamt sér gólfsturtu með reyklituðu gleri með svört blöndunartæki. Vegghengt salerni. Falleg innrétting undir þvottavél og þurrkara ásamt veggskáp með vask í hlýlegum sand/beige lit með reyklitaðri eikarborðplötu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Fallegar flísar á gólfum og veggjum.
EFRI HÆÐ:
Komið er upp hringstiga sem tengir saman hæðir.
Hol er við stiga og tengir saman vistaverur. Þakgluggi sendir inn birtu. Parket á gólfi.
Svefnherbergi (3) er nokkuð rúmgott með parket á gólfi og fataskáp. Stór gluggi og opnanlegur gluggi og þakgluggi.
Svefnherbergi (4) er nokkuð rúmgott með parket á gólfi. Gluggi með opnanlegu fagi.
Geymsla íbúðar er í kjallara í geymslugangi sameignar.
Sameign er öll snyrtileg og teppi á stigagangi. Í sameign er einnig hjólageymsla.
Bílaplan er einnig framan við húsið með töluvert af hleðslustöðvum

Allar nánari upplýsingar veita:
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali / s.773-3532 / adalsteinn@fstorg.is
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali / s.856-5858 / margret@fstorg.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
02/11/202156.600.000 kr.79.000.000 kr.164.5 m2480.243 kr.
05/02/202055.450.000 kr.55.000.000 kr.164.5 m2334.346 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (49)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Rjúpnasalir 14
Bílastæði
Skoða eignina Rjúpnasalir 14
Rjúpnasalir 14
201 Kópavogur
90.5 m2
Fjölbýlishús
211
834 þ.kr./m2
75.500.000 kr.
Skoða eignina Leirutangi 21B
Opið hús:17. mars kl 16:30-17:00
Skoða eignina Leirutangi 21B
Leirutangi 21B
270 Mosfellsbær
102.7 m2
Fjölbýlishús
413
778 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Buðlabryggja 25 Íb. 126 Hlutd.lán
Buðlabryggja 25 Íb. 126 Hlutd.lán
110 Reykjavík
63.7 m2
Fjölbýlishús
211
918 þ.kr./m2
58.500.000 kr.
Skoða eignina Kjarrmóar 30
Bílskúr
Opið hús:17. mars kl 17:00-17:30
Skoða eignina Kjarrmóar 30
Kjarrmóar 30
210 Garðabær
136.2 m2
Raðhús
413
825 þ.kr./m2
112.400.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin