RE/MAX og Sigríður Guðnadóttir löggiltur fasteignasali kynna: Einstaklega fallega eign fyrir 67 ára og eldri í hjarta borgarinnar. Lyfta í húsinu. Stutt í alla helstu þjónustu, heilsugæsla og félagsmiðstöð fyrir eldri borgara í húsinu.
Einstaklega huggulegar sameiginlegar (yfirbyggðar) svalir og bakgarður sem hægt er að njóta allan ársins hring.
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT SENT STRAX! Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð með parket á gólfi og góðum skápum.
Stofa, eldhús og borðstofa eru í opnu rými með parket á gólfi, snyrtileg innrétting með góðu skápaplássi í eldhúsinu, útgengi út á
yfirbyggðar og upphitaðar svalir/sólskála með parketflísum.
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt með innréttingu, sturtu, og t.f. þvottavél.
Sér geymsla er í sameign.
Einstaklega skemmtulegur sameiginlegur garður sem hægt er að njóta vel í góðu veðri.Mjög góð sameign er í húsinu með heilsugæslu og félagsmiðstöð fyrir eldri borgara. Vel staðsett eign í vinsælu hverfi og göngufæri við miðbæinn og þá þjónustu sem miðborgin hefur upp á að bjóða.Nánari upplýsingar gefur Sigríður lgf. í síma 663 3219 eða sigga@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.