DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 17. sept. 2026

Fannborgartangi 4-fokhelt

Nýbygging • ParhúsSuðurland/Flúðir-846
164.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
54.900.000 kr.
Fermetraverð
333.739 kr./m2
Fasteignamat
43.450.000 kr.
Mynd af Andrea Ósk Harradóttir
Andrea Ósk Harradóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2026
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2528387
Landnúmer
236078
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sérinngangur
Vel skipulögð 164,5 m² íbúð í byggingu á Flúðum, með þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og rúmgóðum bílskúr
  • Frábært tækifæri til að búa sér til fallegt framtíðarheimili eða til þess að klára og endurselja fullbúið
  • Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi samkvæmt teikningum
  • Eignin er skráð á byggingarstigi B2 – fokhelt
  • Möguleiki er á að kaupa eignina í núverandi ástandi eða fullbúna gegn hærra kaupverði
  • Möguleiki er á kaupum á Fannborgartanga 2 samhliða eigninni
Birt stærð eignar er 164,5 m² samkvæmt HMS, þar af er íbúðarrými 126,2 m² og bílskúr 38,3 m².

Nánari upplýsingar veita:
Andrea Ósk Harradóttir Lgf. í  S: 785-6698 eða andrea@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur


Nánari lýsing eignar
Samkvæmt teikningum skiptist eignin í forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Einnig er Innangengt í bílskúr samkvæmt teikningum.

Núverandi ástand:
Eignin er í byggingu og selst í núverandi ástandi nema sérstaklega sé samið um fullbúna afhendingu. Húsið er fokhelt og búið er að loka því með þaki, gluggum og útihurðum. Gólfplata er steypt, lagnir hafa verið lagðar að hluta og hluti veggja hefur verið klæddur. Myndir sýna núverandi framkvæmdastig eignarinnar.
Teikningar:
Fyrir liggja byggingarnefndarteikningar, glugga- og hurðateikningar, burðarvirkisteikningar fyrir undirstöður, veggi og þak, lagnateikningar fyrir frárennsli, neysluvatn og hitalagnir ásamt rafmagnsteikningum.
Sökklar og botnplata:
Sökklar eru að hámarki 1.200 mm háir og einangraðir að innanverðu. Botnplata er steypt og einangruð samkvæmt skilalýsingu. Gera má ráð fyrir að steinslípa og flota þurfi botnplötu við áframhaldandi framkvæmdir.
Lagnir:
Skólp- og regnvatnslagnir eru tengdar fráveitukerfi í götu. Hitalagnir eru steyptar í gólfplötu en ekki tengdar við tengikistur og nema. Rör-í-rör kerfi fyrir neysluvatn er undir botnplötu en ótengt.
Útveggir og klæðning:
Útveggir eru úr styrkleikaflokkuðu timbri með krossviði til stífingar og loftunargrind. Að utan er húsið klætt með liggjandi báruáli í litnum Jökull RAL 7035 og standandi hvítri timburklæðningu.
Þak:
Kraftsperruþak er með 14° halla. Þakið er klætt borðum, þakpappa og svartri bárujárnsklæðningu. Vindskeiðar eru úr svörtu áli með innfelldum álrennum.
Gluggar og hurðir:
Útihurðir og gluggar eru ál-tré. Samkvæmt skilalýsingu gæti þurft að mála glugga og hurðir eina umferð að innan. Bílskúrshurð er hefðbundin flekahurð.
Bílskúr:
Bílskúr er 38,3 m². Samkvæmt skilalýsingu er brunaveggur klæddur með tvöföldu gifsi bílskúrsmegin og einföldu lagi íbúðarmegin. Loft og útveggir eru með tvöföldu gifslagi ásamt hefðbundnum frágangi fyrir rafmagnsgrind og rakasperru. Gert er ráð fyrir að rafmagn í bílskúr sé utanáliggjandi.
Lóðarfrágangur:
Samkvæmt skilalýsingu er lóð grójöfnuð og búið að jarðvegsskipta í bílaplani. Innkeyrsla skilast með grófjafnaðri grús og gert er ráð fyrir þriggja hólfa ruslatunnuskýli.
Gjöld
Gatnagerðargjöld, byggingarleyfisgjald og stofngjald holræsa hafa verið greidd. Inntaksgjöld vegna rafmagns, kalds vatns og hitaveitu eru ógreidd. Skipulagsgjald er einnig ógreitt og kemur til greiðslu síðar.
Möguleiki á fullbúinni eign
Seljendur geta jafnframt tekið að sér að fullklára eignina og er því möguleiki á að kaupa hana fullbúna gegn hærra kaupverði. Nánari upplýsingar um verð, umfang framkvæmda og skilalýsingu fullbúinnar eignar fást hjá fasteignasala.
Staðsetning
Flúðir eru notalegt og fjölskylduvænt samfélag í Hrunamannahreppi, umkringt fallegri náttúru. Á Flúðum er öll helsta þjónusta til staðar, meðal annars leik- og grunnskóli, verslun, sundlaug og íþróttaaðstaða. Staðsetningin hentar vel þeim sem vilja njóta rólegs umhverfis og nálægðar við náttúruna, án þess að vera langt frá daglegri þjónustu.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2026
126.2 m2
Fasteignanúmer
2528387
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
35.010.000 kr.
Lóðarmat
8.440.000 kr.
Fasteignamat samtals
43.450.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Byggt 2026
38.3 m2
Fasteignanúmer
2528387
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
03
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.

Myndir (17)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grenigrund 2
Heitur pottur
Opið hús:24. sept. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Grenigrund 2
Grenigrund 2
800 Selfoss
168.4 m2
Parhús
624
524 þ.kr./m2
88.300.000 kr.
Skoða eignina Suðurgata 93
Efsta hæð
Skoða eignina Suðurgata 93
Suðurgata 93
300 Akranes
153.9 m2
Fjölbýlishús
523
584 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Leynisbraut 8
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Leynisbraut 8
Leynisbraut 8
300 Akranes
167.9 m2
Raðhús
413
655 þ.kr./m2
110.000.000 kr.
Skoða eignina Mánavegur 3
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Mánavegur 3
Mánavegur 3
800 Selfoss
178.3 m2
Einbýlishús
513
498 þ.kr./m2
88.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin