Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala kynna:
Glæsilegt nýtt sumarhús á stórri eignarlóð í landi Hallkelshóla í Grímsnesi.
Húsið miðast í dag við afhendingu tilbúið til innréttinga, fullbúið að utan með grófjafnaðri lóð, með úttekt á byggingarstigi 3, matsstigi 5.
Hægt er að fá húsið afhent lengra komið skv. nánara samkomulagi.
Lóðin er 11.200 fm eignarlóð, stendur innst í byggð með skógarreit aðliggjandi þar sem ekki er, né verður, byggt.
** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.is
Um er að ræða alls 155,6 fm af húsakosti (birtir fm eru 141,1 fm og svo er óskráð gestahús á steyptum sökkli 14,5 fm) sem skiptist eftirfarandi:- Grunnhæð húss er með birta fm 114,6 fm
- Efri hæð hússins er með birta fm 26,5 fm
- (Efri hæðin er samtals 38,7 fm, að hluta til undir súð en vel nýtanleg út að veggjum, búið að breyta hluta af auka fm í geymslupláss).
- Húsið er með gólfhita og verður varmadæla (loft í vatn ásamt neysluvatnshitakút), kynding í gólfhita uppsett og komin í virkni við afhendingu hússins.
- Rafmagn verður fullfrágengið með slökkvurum og innstungum frágengnum, dimmer í slökkvurum.
- Allar pípulagnir innanhúss klárar við tengipunkta.
- Klósett og kassi er uppsett og komið í virkni.
- Einnig gert ráð fyrir tengjum fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi.
- Húsið fullfrágengið að utan en með grófjafnaða lóð.
- Komnar eru helstu undirstöður steyptar undir sólpall.
- Gestahúsið, sem er á steyptum sökkli, verður afhent fokhelt, einangrað að innan og klætt, fullfrágengið að utan.
Hallkelshólar í Grímsnesi er friðsælt og gróið sumarhúsahverfi í hjarta Suðurlands. Stutt er þaðan í marga golfvelli ásamt því að vera á gullna hringnum þar sem heimsækja má allar helstu náttúruperlur suðurlands. Stutt er niður á Selfoss til að sækja alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / hrannar@lifumheima.is
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lifum Heima fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.