Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:
Vallarás 6, 260 ReykjanesbærVel skipulagt einbýlishús með þremur svefnherbergjum og innbyggðum bílskúr. Eldhús, borðstofa og stofa mynda stórt og bjart alrými með útgengi á afgirtan timburpall og áfram út í garð. Gólfhiti er í húsinu og lóðin er rúmgóð og tyrfð að stórum hluta.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Smelltu hér til að bóka skoðun.Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals
157,7 m². Þar af er íbúðarhluti
131,4 m², merktur 01-0101, og bílskúr
26,3 m², merktur 01-0102. Fastanúmer eignarinnar er F2332327 og byggingarár 2019. Lóðin er 768 m² leigulóð.
Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa er flísalögð með góðu skápaplássi.
Eldhús,
borðstofa og
stofa eru í rúmgóðu og opnu alrými. Eldhúsið er með dökkri innréttingu, góðu skápa- og vinnuplássi og stórri eyju með helluborði og setuaðstöðu. Ofn er í vinnuhæð. Stórir gluggar eru í alrýminu og útgengt er úr stofu á
timburpall og áfram út í garð.
Hjónaherbergi er rúmgott með stórum fataskáp.
Tvö svefnherbergi eru til viðbótar og eru fataskápar í báðum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni og rúmgóðri sturtu með glerþiljum.
Þvottahús er með hvítri innréttingu, vinnuborði, vaski og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Þaðan er innangengt í bílskúr.
Geymsla er innan íbúðar.
Harðparket er á meginrýmum og svefnherbergjum en
flísar í forstofu, baðherbergi og þvottahúsi.
Bílskúr er 26,3 m² að stærð. Þar er gólfhiti, málað gólf og rafdrifinn hurðaopnari.
Byggingarlýsing:Samkvæmt byggingarlýsingu er húsið timburhús á steyptum undirstöðum og einangraðri steyptri gólfplötu. Húsið er klætt að utan með flísaklæðningu. Þak er kraftsperruþak og gluggar eru úr timbri, álklæddir að utan, með tvöföldu einangrunargleri. Gólfhitakerfi er í húsinu.
Lóð og aðkoma:Lóðin er 768 m² og tyrfð að stórum hluta. Bílaplan er malarlagt. Við bakhlið hússins er rúmgóður timburpallur sem er afgirtur með skjólveggjum og tengist beint við alrými hússins.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.isErtu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00