Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Framnesveg 8, 230 Reykjanesbæ.
Um er að ræða vel skipulagða 147,6 m2 íbúð á fyrstu hæð í tvíbýlishúsi þar af er 37,4 m2 bílgeymsla, á góðum stað í Reykjanesbæ, stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskóla og verslunarkjarna.
Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi, gott hol og stór stofa ásamt borðstofu, eldhús og þvottahús. Góð aðkoma og góð lóð að aftan, góð verönd að aftan, gólfefni eru flísar og parket.
Nánari lýsing.Anddyri: Gengið er inní anddyri með flísum á gólfi.
Hol: Stórt og rúmgott hol sem er miðjan í húsinu, með flísar á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með harðparketi á gólfi, hurð út á skjólsæla og sólríka verönd.
Eldhús: Stórt og rúmgott eldhús með gamalli innréttingu og tækjum, góður borðkrókur er í eldhúsinu
Búr/geymsla: innaf holi er geymsla, sem áður var búr.
Baðherbergi: baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, salerni og sturta.
Herbergi: 2 rúmgóð herbergi annað með parketi og hitt með flísar á gólfi, stór skápur er í hjónaherberginu.
Þvottahús: Rúmgott þvottahús sem nýtt er líka sem inngangur, með flísum á gólfi.
Bílgeymsla er um 37,4 m2 með herbergi að aftan, innangengt er frá baklóðinni inní bílgeymsluna, aksturshurð er að framan.
Lóð er ræktuð, stéttar eru steyptar, sérbílastæði er fyrir framan bílgeymsluna.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ, og í síma 420-4050.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.