Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu glæsilega 5 herbergja íbúð með sérinngangi í nýju tengihúsi í Fossvoginum. Íbúð 0108 er á tveimur hæðum bæði með svölum og verönd í glæsilegri álklæddri nýbyggingu á frábærum stað við Fossvogsveg við Fossvogsdal. Íbúðin er með stæði merkt B-14 í lokaðri bílageymslu. Fossvogsvegur 8-34 er nýtt 3ja hæða tengihús sem er í Fossvognum nánar tiltekið fyrir neðan Borgarspítalann á einstaklega veðursælum og fallegum stað.
Birt stærð íbúðar 0108 er 189,4 fermetrar. Áætlaður afhendingartími er í febrúar 2026.
Húsið er 3ja hæða. Fjórar sérhæðir eru á efstu hæðinni með stórum þaksvölum og sérlyftum. Ellefu tveggja hæða íbúðir (hálfgerð raðhús) eru á miðhæð og jarðhæð. Bílageymsla er einnig á jarðhæð en innangengt er í íbúðirnar frá bílageymslu (alla nema eina íbúð). Samtals eru fimmtán íbúðir í húsinu. Öllum íbúðum fylgja stæði í bílageymslu en einnig eru sameiginleg bílastæði á lóð.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is
Húsin eru einstaklega vönduð með Free@Home hússtjórnunarkerfi, sjónsteypuveggjum að hluta, vönduðum innréttingum, stórum svölum, og verönd ásamt stæði í bílakjallara.
Þau skilast með innréttingum, tækjum, flísalögðum votrýmum og frágangi utanhúss samkvæmt skilalýsingu. Svefnherbergin eru þrjú og tvö baðherbergi ásamt gestasnyrtingu.
- Innréttingar frá Brúnás, sýnilegir fletir á innréttingum verða úr Gladstone melamin efni og að innan úr ljósgráum spónaplötum.
- Borðplötur í eldhúsi verða úr Virgo Quartz steini frá S. Helgasyni.
- Eldhústæki: Vaskur og blöndunartæki verða í innréttingu frá Tengi. Vaskur verður undirlímdur í borðplötu. Einnig mun fylgja helluborð með viftu, ofn með blæstri, örbylgjuofn, innbyggð uppþvottavél með áklæddum fronti og innbyggður kæliskápur. Raftæki sem fylgja eldhúsi koma frá Bræðrunum Ormsson.
-Gólfhitakerfið fylgir frágengið og verður stjórnað af hitanemum í rofadósum sem er hluti af Free@home hússtjórnunarkerfinu
- Sjá nánar um skil í skilalýsingu seljanda.
Byggingaraðili er traustur verktaki til fjölda ára: Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is
1. Frágangur innanhúss íbúða.
1.1. Gólfefni. Íbúðin sjálf verður afhent án gólfefna, nema á baðherbergi og þvottahúsi verða flísar frá Parka.
1.2. Veggir. Útveggir íbúðarinnar eru sandsparslaðir. Léttir innveggir eru hlaðnir úr vikur- eða gjallplötum, grófpússaðir og sandsparslaðir eða hefðbundnir gipsplötuveggir sparslaðir. Veggir eru grunnaðir og málaðir með tveimur yfirferðum af akrýlmálningu, gljástig 5 eða sambærilegt.
1.3. Loft. Steypt loft eru slípuð, og slétt sandspörtluð þar sem við á. Loft eru grunnuð og máluð með tveimur yfirferðum af plastmálningu, gljástig 2 eða sambærilegt. Loft og veggir á baðherbergjum og þvottahúsum eru máluð með viðurkenndri votrýmismálningu. Á völdum stöðum er hluti lofta gips- og eða klædd hljóðdúk.
1.4. Gler. Tvöfalt hefðbundið K-gler, verksmiðjugler er í öllum gluggum. Ábyrgð framleiðanda er samkvæmt skilmálum BYKO glerframleiðanda. Við kaup íbúðar yfirtekur/taka kaupandi/kaupendur ábyrgð framleiðanda.
1.5. Hurðir. Inngangshurð úr bílgeymslu er stálhurð EI60-CS en millihurð yfirfelld hvít inn í íbúðina EICS-30 sem og geymsluhurðir, Anddyrishurð er timburhurð frá BYKO. Innihurðar eru spónlagðar með hnotu og gereftalausar frá Brúnás. Rennihurðir eru spónlagðar með hnotu þar sem við á frá Brúnás. Svalahurðir eru frá BYKO.
1.6. Fataskápar. Fataskápur er í forstofu og svefnherbergjum. Í sumum hjónaherbergjum eru fataherbergi ýmist með rennihurðum og/eða hefðbundnum skápahurðum. Innréttingar verða frá Brúnás og eru að innan úr ljósgráum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir verða spónlagðar þar sem við á úr Hnotu.
1.7. Eldhús. Eldhúsinnrétting verður frá Brúnás og að innan úr ljósgráum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir verða spónlagðar með Hnotu. Borðplötur verða úr Virgo Quartz steini frá S. Helgasyni. Vaskur og blöndunartæki verða í innréttingu frá Tengi. Vaskur verður undirlímdur í borðplötu. Einnig mun fylgja helluborð með viftu, ofn með blæstri, örbylgjuofn, innbyggð uppþvottavél með áklæddum fronti. Ísskápur og frystir innbyggðir í innréttingu og vínkælir. Raftæki sem fylgja koma frá Bræðrunum Ormsson.
1.8. Baðherbergi. Á baðherbergi er gólf flísalagt og verða veggir flísalagðir upp í loft. Innrétting frá Brúnás verður að innan úr ljósgráum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir verða spónlagt með Hnotu. Rennihurðir úr fataherbergi inn á bað verður úr gleri. Borðplötur eru úr Virgo Quartz steini. Á baðherbergi verða ýmist speglaskápar eða speglar eftir því sem við á. Handlaug ásamt hitastýrðu blöndunartæki verður í innréttingu frá Tengi. Handklæðaofn þar sem við á, upphengt og innbyggt salerni með hæglokandi setu ásamt flísalögðum sturtubotni með sturtuhlið eða sturtuklefa úr gleri eftir því sem við á. Innbyggt blöndunartæki verður í sturtu frá Tengi.
1.9. Þvottahús. Í þvottahúsi er gólf flísalagt og innréttingar frá Brúnás úr ljósgráum spónaplötum með ræstivask og blöndunartæki í borði. Borðplata er úr plasti. Niðurfall er í gólfi og tengingar fyrir þvottavél og þurrkara, gert er ráð fyrir barkalausum þurrkara. Veggir eru grunnaðir og málaðir með viðurkenndri votrýmis málningu.
1.10. Sérgeymsla. Steypt loft og veggir í sérgeymslum eru spörsluð og máluð gólf er flísalagt. Rafmagnstengill er í sérgeymslu.
1.11. Hitakerfi. Íbúðirnar eru upphitaðar með gólfhita skv. teikningum. Góðhitakerfinu verður stjórnað af hitanemum í rofadósum sem er hluti af Free@home hússtjórnarkerfinu. Ofnakerfi og hitablásarar eru í sameign þar sem við og verða hitastýrðir lokar á því.
1.12. Loftræsi-, vatns- og þrifalagnir. Loftræsi-, vatns, - og þrifalagnir fylgja frágengnar skv. teikningum. Forhitari er á heitu neysluvatni. Í hverri íbúð er loftskiptakerfi með varmaendurvinnslu sem skilast fullfrágengið.
1.13. Rafmagns- og sjónvarpslagnir. Rafmagns- og sjónvarpslögn fylgir frágengin með einum mynddyrasíma í íbúð. Tölvutengill verður í alrými og herbergjum. Ljósleiðari verður í húsinu. Innfelld lýsing í alrými (stofu og eldhúsi) samkvæmt teikningu með stýringu í gegnum Free@home kerfi frá Rafport.
2. Frágangur sameignar.
2.1. Anddyri og stigahús fyrir þakíbúðir. Sameign á hverri þakíbúð og stigangur eru sandspartlaðir, grunnaðir og málaðir tveimur yfirferðum af plastmálningu. Á stigum og pöllum í þakíbúðum eru uppsett handrið. Raflögn í sameign fylgir frágengin með ljósakúplum þar sem venja er að hafa þá ásamt lýsingu í lofti þar sem við á. Loftræsilagnir eru lagðar samkvæmt teikningum.
2.2. Hurðir. Allar útihurðar fylgja frágengnar í hverja íbúð með bréfalúgu. Hurðir frá bílgeymslu inn í stigahús og að brunastúkum eru stálhurðir án rafmagnsbúnaðar.
2.3. Lyftur. Uppsettar lyftur fyrir þakíbúðir.
2.4. Lokað bílageymsluhús. Bílgeymsla er í kjallara hús með máluðu lofti og klæðningu þar sem við á. Útveggir verða einangraðir ýmist að utan- eða innanverðu eftir því sem við á. Þeir eru hreinsaðir og slípaðir að innanverðu og málaðir. Hitablásarar og loftræsikerfi fylgir frágengið í samræmi við teikningar. Gólf er steypt og vélslípað án frekari meðhöndlunar en bílastæði eru merkt. Sprungur geta myndast á yfirborði gólfsins sem verða ekki meðhöndlaðar frekar. Hurð fyrir bílgeymslu fylgir frágengin með sjálfvirkum opnunarbúnaði og einni fjarstýringu á hvert stæði. Rafmagnstengill fylgir hverju stæði.
2.5. Hjóla- og vagnageymslur. Steyptir innveggir í hjóla- og vagnageymslu eru hreinsaðir slípaðir og málaðir. Gólf eru slípuð og máluð.
2.6. Sorp og sorpgeymslur. Sorpgeymsla eru á bílastæðum fyrir utan húsið.
3. Frágangur utanhúss.
3.1. Klæðning og einangrun. Útveggir verða einangraðir að utan og álklætt að mestu. Kjallaraveggir, stigaveggir 1 hæðar við garðpalla eru að hluta með múrfiltun og málaðir. Sprungur geta myndast á yfirborði múrveggja sem verða ekki meðhöndlaðar frekar.
3.2. Steypt þak. Þakplata er steypt með vatnshalla að niðurföllum. Ofaná steypa plötu kemur tvöfalt lag af eldsoðnum tjörupappa. Einangrun er 200 mm rakaþolin þrýstieinangrun. Ofan á einangrun kemur vatnsvarnardúkur með öndun, einangrun er fergt með sjávarmöl/völusteinum. Niðurföll eru tengd regnvatnslögnum.
3.3. Svalir. Svalagólf eru steypt og lögð fljótandi útiflísum þar sem við á. Svalahandrið eru úr áli og gleri frá Ál og gler eða sambærilegt. Útiljós og rafmagnstengill er á svölum. Svalaloft eru slípuð, grunnuð og máluð. Þaksvalir eru með fljótandi útiflísum þar sem við á. Tengingar fyrir hitapott eru til staðar.
3.4. Svalalokun. Ekki er möguleiki á svalalokunum.
3.5. Gluggar. Gluggar eru álklæddir timburgluggar frá BYKO. Opnanleg gluggafög fylgja frágengin, svo og allar úti- og svalahurðir að fullu frágengnar með þéttiköntum.
3.6. Lóð. Lóð verður fullfrágenginn samkvæmt leiðbeinandi teikningu landslagsarkitekts. Stéttar næst húsi verða hellulagðar og snjóbræðslulögn í stæðum framan við húsið samkvæmt teikningu. Bílastæði eru hellulögð þar sem við á. Akbrautir að húsinu sem og skábraut inn í bílgeymslu verða malbikaðar, steyptar og eða hellulagðar. Akbraut inn í bílgeymsluna verður með snjóbræðslu.
4. Handbók hússins. Útbúinn verður sérstök handbók vegna hússins þar sem fram koma helstu upplýsingar um söluaðila efnis sem notað var í húsinu ásamt skýringum á helsta búnaði. Upplýsingar eru oft sóttar á heimasíður hinna ýmsu aðila og geta því slæðst með allskonar smávægilegar villur varðandi tæki og búnað þeirra og ber byggingarfélagið ekki ábyrgð á þeim.
5. Hönnuðir. Arkitekt: Guðmundur Gunnlaugsson. Verkfræðihönnun: NNE, Verkfræðistofa. Raflagnahönnun: Umsjá ehf. Sigurður Ívar. Lóðahönnun: Inga Rut Gylfadóttir, Landslag ehf.
6. Teikningar. Í kaupsamningi kemur fram hvaða teikningar arkitekts eru í gildi á þeim tíma þegar kaupsamningur er gerður. Á byggingartíma hússins áskilur byggingarfélagið sér rétt til að breyta þessum teikningum í samráði við arkitekt vegna tæknilegra úrfærslna sem upp geta komið upp á meðan framkvæmd stendur. Teikningar annarra hönnuða geta líka breyst vegna tæknilegra útfærslna og/eða breytinga vegna búnaðar sem síðar er valinn inn í eða utan á húsið.
7. Byggingaraðili. Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf., www.bygg.is Verkefnastjóri Bygg, Konráð Jón Sigurðsson konrad@bygg.is Frekari upplýsingar um efnisval og annað má nálgast hjá verkefnastjóra Byggingarfélagsins.
8. Áætlaður afhendingartími. Áætlað er að íbúðir verði afhentar feb.2026. Sameign, lóð og bílgeymsla verður afhent samhliða afhendingu síðustu íbúða. Allar breytingar á íbúðinni sjálfri og einstaka hluta í henni að ósk kaupanda hefur áhrif á afhendingartíma til seinkunar. Allar breytingar sem kaupendur hafa hug á að gera þarf að gera í samráði við verkefnastjóra skriflega og mun hann meta hvort þær séu framkvæmanlegar. Íbúðareigandi er sjálfur ábyrgur fyrir því að bæði viðkomandi söluaðilar efnis ásamt verkefnastjóra byggingarfélagsins séu upplýstir um allar breytingar með pósti ekki með smáskilaboðum. Íbúðareigandi er sjálfur ábyrgur vegna viðbótarkostnaðar sem getur myndast hjá byggingarfélaginu vegna þessara breytinga. Byggingarfélagið tekur ekki á sig ábyrgð vegna skemmda sem kunna að verða á búnaði eða efnum sem íbúðareigandi hefur sjálfur sett inn í íbúðina áður en formleg afhending hefur farið fram.
9. Mikilvægar upplýsingar til kaupenda við afhendingu • Í nýjum íbúðum er mikill byggingaraki í steypuvirkinu. Þessi raki mun hverfa á einu til tveimur árum að mestu en það er þó algjörlega háð útloftun í íbúðinni. Nauðsynlegt er að fylgjast með vatnsmyndun (döggun) innan á gleri. Ef mikil bleyta safnast saman neðst á glerinu getur vatnið skemmt gluggann, gólfefni, málningu og spörslun. Því er mikilvægt að hafa gluggafögin lítillega opin til að tryggja útloftun, sérstaklega þegar tekur að kólna. • Aðalhurðir á hverju stigahúsi svo og bílageymsluhurðir verður að fylgjast vel með og umgangast þannig að engar þvinganir verði við umgang þeirra. Reglulegt viðhald hurðanna er nauðsynlegt. • Þar sem minnst er á gerð tækja í innréttingum í skilalýsingu er átt við tæki af sambærilegri gerð og gæðum. Sama á við um birgja og efnissala. Seljandi áskilur sér rétt til breytinga á byggingartímanum en er þá miðað við sambærilega vöru. • Íbúðareigandi þarf að hreinsa sigti á blöndunartækjum nokkrum sinnum eftir að flutt er inn í íbúðina og fylgjast með niðurföllum í þvottahúsi, baði og úti á svölum. • Nauðsynlegt er að sílanbera steiningu á ca. 2ja ára fresti. • Íbúðaeigendum er kunnugt um dælur í dælubrunnum í hverju stigahúsi sem þarf að fylgjast með skipulega svo og niðurföll sem þarf að hreinsa sem og öryggisdælu. • Varast ber að setja plastfilmu eða merkingu á gler eða setja gardínur þétt að gleri vegna rakamyndunar og sprunguhættu. • Nauðsynlegt er að smyrja lamir á opnanlegum fögum og svalahurðum svo þau festist ekki. • Ekki er mælst til þess að setja heita potta eða pönnur beint ofan á steinplötur í eldhúsum vegna sprunguhættu.
10. Til áréttingar frá seljanda • Seljandi áskilur sér rétt til að láta breyta teikningum á byggingartímanum í samráði við arkitekta og hönnuði að fengnu samþykki byggingaryfirvalda sé þess þörf vegna tæknilegra útfærslna. • Minniháttar misræmi getur verið á milli teikninga arkitekta, söluteikninga og sérteikninga innrétting • Seljandi áskilur sér allan rétt til þess að gera efnis-, tæknilegar- og útlitsbreytingar á meðan á byggingarframkvæmdum stendur. • Við afhendingu skal kaupandi skoða íbúðina ítarlega. Ef einhverjir ágallar finnast skal kaupandi, áður en hann hefur framkvæmdir í íbúðinni, afhenda fulltrúa BYGG undirritað eyðublað þar sem þessir ágallar eru taldir upp og skal byggingaraðili lagfæra þau atriði eins fljótt og auðið er. Eins eru allar íbúðir yfirfarðar u.þ.b. ári eftir sölu og ef eitthvað þykir ábótavant í þeirri yfirferð og fellur ekki undir eðlilegt viðhald fasteigna skal það lagfært eins fljótt og auðið er. • Við lögn á gólfefnum skal íbúðareigandi yfirfara gólfflöt og ganga úr skugga um að engar misfellur séu til staðar, ef íbúðareigandi verður var við misfellur á gólfflöt íbúðarinnar skal hann koma þeim ábendingum til verkstjóra eða verkefnasjóra BYGG áður en gólfefni eru lögð. Einnig er mælst til með að sett sé fjaðrandi þéttiefni í fúgu á milli gólfefna og veggja. Neðan á gólflista ofan á parket er mælst til með að setja fjaðrandi gúmmíborða. Fylgja skal fyrirmælum efnissala við frágang gólfefna. • Í íbúðinni er anhydrít gólf ílögn með gólfhita og verður því að nota varmaleiðandi dúk undir gólfefni þar sem við á. Í gólfinu getur verið töluverður raki og þá er nauðsynlegt að rakagrunna gólfið áður en niðurlímt gegnheilt parket er lagt á gólf ílögnina. • Þegar niðurlímt parket er lagt skal ekki líma niður dúk eða parket undir gólfsíðum gluggum eða þar sem anhydrít slítur sig frá veggjum sökum hljóðleiðni. • Seljandi ber ekki ábyrgð á eðlilegri og venjulegri sprungumyndun í múr, steypu og timbri og/eða öðrum atriðum sem heyra undir eðlilegt viðhald hússins og almenna umhirðu. • Hafi kaupandi einhver umkvörtunarefni fram að færa vegna hinnar seldu íbúðar, skal hann strax beina umkvörtun sinni til verkefnastjóra og/eða verkstjóra hússins. • Íbúðarkaupendur gera sér grein fyrir að í sérgeymslum og öðrum geymslum geta verið lagnir í loftum og á veggjum sem nauðsynlegar eru vegna lagnaleiða hússins. • Kaupandi ber ábyrgð á lóð hússins frá lokaúttekt, þ.m.t. gróðri. • Allar breytingar að ósk kaupanda þurfa að fara í gegnum verkefnastjóra á hverjum byggingarstað og hafa þær áhrif á afhendingartíma til seinkunar. Breytingar geta leitt til kostnaðarauka. Skilalýsing þessi er hluti af kaupsamningi.