Prima fasteignasala og Björgvin Þór Rúnarsson lgf. kynna í einkasölu Lyngás 1E íbúð 108, 210 Garðabær.
Vel skipulögð, björt og falleg fjögurra herbergja íbúð á 1.hæð með sérinngangi ásamt stóra sér verönd með skjólveggjum sem er opin fyrir sól í suð-vestur. Með íbúðinni fylgir sér merkt stæði merkt 07B42
Eignin er skráð 100,4 og skiptist í þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu / borðstofu, baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, anddyri og geymslu í sameign.
Mjög björt og smekkleg íbúð sem er vel staðsett með tilliti til aðgengis að verslun, þjónustu og samgönguleiðum. Í göngufæri er skóli, leikskóli, íþróttamiðstöð, sundlaug, verslanir í miðbæ Garðabæjar og önnur þjónusta.Ökuleiðir eru greiðfærar og stutt í almenningssamgöngur.
í lokaðri og upphitaðri bílageymslu.
Nánari lýsing:
Gengið er inn um sérinngang og inn í flísalagt anddyri með innbyggðum fataskápum. Ljóst harðparket á gólfum. Í eldhúsinu er innrétting frá AXIS með gottskápapláss, innbyggðum ísskáp, innbygðri uppþvottavél, AEG helluborði, AEG bakaraofni, svörtum veggháf, stál vaski og svörtum blöndunartækjum. Borðplötuefnið er Pelago Marmor weiss. Stofan er opin og björt með útgengi út á stóra verönd sem er opin til suðurs og suð-vesturs. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni. Hjónaherbergið er með innbyggðum fataskápum. Bæði barnaherbergin eru með innbyggðum fataskápum. Baðherbergið er með flísum á gólfi og á hluta af veggjum. Baðkar með sturtuaðstöðu, baðinnrétting með handlaug og tveimur skúffum. Upphengt salerni og handklæðaofn. Innskot með tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt efri skáp.
Allar innréttingar og skápar eru frá AXIS innréttingasmiðju. Fataskápar í svefnherbergjum og forstofu eru mósvartir úr melamín. Innihurðir eru yfirfelldar og hvítlakkaðar.
Í sameign hússins er sérgeymsla í kjallara sem og sameiginleg reiðhjóla- og vagnageymsla. Lokuð sameiginleg bílageymsla er undir húsinu með aðgengi innandyra frá hverju húsi og innkeyrsluhurð en íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði. Sameiginleg bílastæði eru svo fyrir framan húsið. Sorpgeymslur eru staðsettar utandyra. Á lóðinni er sameiginlegur inngarður með göngustíg og leiksvæði með leiktækjum fyrir börn.
Nánari upplýsingar veita:
Björgvin Þór Rúnarsson löggiltur fasteignasali / s.8551544 / bjorgvin@primafasteignir.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.