
Nýlegt og glæsilegt 99fm 4ra herbergja endaraðhús. Opið eldhús, 3 svefnherbergi, þvottahús, geymsla, ljósastýring, gólfhiti.
Hraunbraut 17A: Nýlegt og glæsilegt endaraðhús að Hraunbraut 17, Borg í Grímsnesi, í raðhúsalengju með 5 íbúðum. Íbúðin er fullbúin að innan sem utan, en lóð er grófjöfnuð. Birt stærð íbúðar er 98,6 fm. Innbyggð uppþvottavél í eldhúsi, gólfhiti með hitastýringu, varmaskiptir, innfelld lýsing með Plejd ljósastýringu.
Íbúðin er 4ra herbergja og skiptist upp í forstofu, þrjú rúmgóð svefnherbergi, þvottahús, geymslu, baðherbergi með sturtu, og opið rými með eldhúsi og stofu. Innfeld lýsing. Útgengt bæði í norður- og suðurgarð um svalahurðir.
Vönduð eldhúsinnrétting og skápar með innbyggðri uppþvottavél. Slitsterkt og vatnsþolið vínylparket á gólfum, og vandaðar flísar á baðherbergi.
Baðherbergið er flísalagt með vönduðum flísum, upphengdu salerni, og innsteypt þröskuldarlaus sturta með öryggisgleri. Blöndunartæki af bestu gerð.
Gólfhiti er í öllum rýmum, með hitastýringu fyrir sérhvert svæði. Vélrænt útsog er í rakarýmum og eldhúsi.
Klæðning hússins er viðhaldslétt lituð bárujárnsklæðning.
Lóðin er grófjöfnuð með malarbílastæði. 2 bílastæði framan við hús.
Til hliðar við raðhúsið er glænýr leikvöllur. Leikskóli án biðlista, skóli, sundlaug, íþróttahús, líkamsrækt, og almenn þjónusta - allt í göngufæri.
Borg í Grímsnesi er fjölskylduvænt hverfi í mikilli uppbyggingu. Í göngufæri er a finna sundlaug, leikskóla, grunnskóla, og þjónustu við eldri borgara. Ný verslun, bensínstöð og hleðslustöð fyrir rafbíla, líkamsræktarsalur og fleiri mannvirki eru ýmist í byggingu eða í undirbúningi. Enginn biðlisti er í leikskólann og grunnskólann, og mötuneyti sveitafélagsins sér ungviðinu fyrir hollum íslenskum þjóðarréttum. Sveitafélagið hefur ítrekað verið valið besta sveitafélag landsins í þjónustukönnunum. Svæðið er paradís fyrir útivistarfólk. Miklir atvinnumöguleikar á svæðinu tengt ferðaþjónustu og uppbyggingu.
Selfoss er í 15mín akstursfjarlægð, og Reykjavík í c.a. 45mín akstursfjarlægð.
Frekari upplýsingar um svæðið og sveitafélagið má finna hér: www.gogg.is
Frekari upplýsingar um þessa fasteign veitir IMIROX í síma 777-2500 eða í tölvupósti info@imirox.com.
Finndu frekari upplýsingar um eignina á www.e-fasteignir.is| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
221 | 73,4 | 64,9 | ||
108 | 69,7 | 72,9 | ||
270 | 239,2 | 153,7 | ||
210 | 64,9 | 72,9 | ||
210 | 64,9 | 72,9 | ||
210 | 64 | 72,9 |