ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina Mávabraut
1B, birt stærð 85.1 fm. Tveggja herbergja íbúð á annari hæð í sex íbúðar húsi. Á neðstu hæð eru tvær geymslur sem tilheyra íbúðinni, önnur er rúmgóð með glugga og gæti nýst sem íverurými eða hobbý aðstaða.
Nánari upplýsingar veitir: Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.is.Nánari lýsing. Forstofa / hol með flísum á gólfi og klæðaskáp
Hol - Stofa - borðstofa með teppi á gólfi. Hurð út á svalir.
Eldhús með parketi á gólfi og viðar innréttingu. Flísar á milli skápa. Ofn, helluborð og vifta.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Hvít innrétting, baðkar með sturtutækjum, opnanlegt gluggafag.
Hjónaherbergi með fataskáp dúkur á gólfi.
Þvottahús með dúk á gólfi, þar eru hillur.
Geymslur eru tvær, 9.4 fm með glugga og 5.6 fm við hjólageymslu án glugga.
Búið er að endurnýja neysluvatns lagnir. Svalir eru stórar og góðar. Snyrtileg sameign, með hjólageymslu og þurkherbergi. Stutt er í verslun og þjónstu ásamt leiksvæði, skóla og íþróttamannvirki.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 50.000 auk vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.