Fasteignaleitin
Skráð 8. sept. 2025
Deila eign
Deila

Sambyggð 10

FjölbýlishúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
83 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
45.500.000 kr.
Fermetraverð
548.193 kr./m2
Fasteignamat
35.600.000 kr.
Brunabótamat
39.800.000 kr.
Mynd af Hólmar Björn Sigþórsson
Hólmar Björn Sigþórsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1978
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2212715
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
Sagðar í lagi / Hreinsaðar og fóðraðar.
Raflagnir
Sagðar í lagi.
Frárennslislagnir
Upprunalegar.
Gluggar / Gler
Sagðir í lagi / Hafa verið endurnýjaðir.
Þak
Sagt í lagi / Nýtt járn 2003.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir úr stofu.
Lóð
6,67
Upphitun
Hitaveita / Sögð í lagi.
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Væntanlegar framkvæmdir: Viðgerð á affallsröri fyrir sameign og að götu sameiginlegt með Sambyggð 12.  Sjá í yfirlýsingu húsfélags dagsett 4.9.2025.
Gallar
Móða í gleri í stofu. 
Helgafell fasteignasala og Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og kynna í einkasölu Sambyggð 10, 815 Þorlákshöfn:

Um er að ræða bjarta og snyrtilega 3ja herbergja endaíbúð á 2 hæð í vel viðhöldnu fjölbýlishúsi. Birt stærð eignar er 83 fm. þar af er íbúðarhluti 78,1 fm. og geymsla 4,9 fm. Vel staðsett og stutt er í alla helstu þjónustu s.s. verslanir, skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð / sundlaug og verslanir. 

TILVALIN FYRSTU KAUP!!!

HÚSIÐ VAR KLÆTT AÐ UTAN FYRIR NOKKRUM ÁRUM - SKIPT VAR UM ALLA GLUGGA FYRIR 12 ÁRUM (PLASTGLUGGAR) OG UM JÁRN Á ÞAKINU ÁRIÐ 2003.

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX


Eignin skiptist í forstofu, stofu / borðstofu, tvö rúmgóð svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og geymslu. Í sameign er sameiginlegt þvottahús og vagna og hjólageymsla. Góð aðkoma er að húsinu. Sérmerkt bílastæði eru fyrir framan húsið. 

Nánari lýsing: 
Forstofa: Komið er inn í parketlagða forstofa með fatahengi.
Eldhús: Með fallegri innréttingu (Brúnás), AEG bakaraofn, keramikhelluborð, vifta, ísskápur og uppþvottavél sem fylgja með, borðkrókur, parket á gólfi. 
Stofa / borðstofa: Rúmgóð og björt stofa með parketi á gólfi, útgengi út á suður svalir. 
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með innfeldum skápum, parket á gólfi.
Herbergi: Rúmgott, hvítur fataskápur, parket á gólfi. 
Baðherbergi: Með hvítri innréttingu, nýr speglaskápur með ljósi, baðker / sturta, handklæðaslá, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísaplötur á vegg að hluta, dúkur á gólfi. 
Geymsla: Í sameign er 4,9 fm. sérgeymsla. 
Sameign: Snyrtileg sameign, sameiginlegt þvottahús og er geymslugangur notaður sem vagna og hjólageymsla.

Húsið: Húsið Sambyggð 10-12 er þriggja hæða steinsteypt fjölbýlishús með tveimur stigagöngum, 8 íbúðir í hvorum stigangangi. Sambyggð 10 er klætt að utan með bárujárni. Bílastæði við húsið eru sérmerkt.
Lóð: Sameiginleg 3.310 fm. gróin lóð.
Staðsetning: Smellið hér. 

Að sögn eiganda er búið er að endurnýja eftirfarandi:
* Nýir rafmagns tenglar og rofar í íbúð. 
* Nýir gólflistar í stofu. 
* Nýmálað að innan að hluta. 
* Nýtt parket 2023.
* Skipt um innréttingu (ný gömul) í eldhúsi. 
* Ný klæðning sett á húsið (Sambyggð 10) 2021.
* Skipt var um glugga/gler á Sambyggð 10 fyrir ca. 12 árum (plastgluggar). 
* Skipt var um járn á þakinu 2003.

GÓÐ EIGN SEM VERT ER AÐ SKOÐA - TILVALIN FYRSTU KAUP - ER VEL STAÐSETT, STUTT ER Í SKÓLA, LEIKSKÓLA, ÍÞRÓTTAAÐSTÖÐU OG VERSLANIR. 

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893-3276 eða holmar@helgafellfasteignasala.is.

Þorlákshöfn:
Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn og í Vesturbyggð nýju hverfi er verið að byggja leikskólann Hraunheima. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.  
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
03/05/202329.050.000 kr.35.500.000 kr.83 m2427.710 kr.
28/06/201812.150.000 kr.18.500.000 kr.83 m2222.891 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sambyggð 6, íbúð 0201
Sambyggð 6, íbúð 0201
815 Þorlákshöfn
78.2 m2
Fjölbýlishús
312
561 þ.kr./m2
43.900.000 kr.
Skoða eignina SAMBYGGÐ 10 ÍBÚÐ 303
Sambyggð 10 Íbúð 303
815 Þorlákshöfn
83 m2
Fjölbýlishús
312
529 þ.kr./m2
43.900.000 kr.
Skoða eignina Eyravegur 34 íbúð 309
Eyravegur 34 íbúð 309
800 Selfoss
66.1 m2
Fjölbýlishús
312
710 þ.kr./m2
46.900.000 kr.
Skoða eignina Eyravegur 50
Skoða eignina Eyravegur 50
Eyravegur 50
800 Selfoss
71.3 m2
Fjölbýlishús
211
610 þ.kr./m2
43.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin