Sunna fasteignasala ehf., Jasmín Erla Ingadóttir, lfs. og Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., kynna Kristnibraut 79, 113 Reykjavík. Um er að ræða vel skipulagða og bjarta þriggja herbergja íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi við Kristnibraut 79 í Grafarholti. Eignin er skráð 105,8 fm, þar af er íbúðin 94,7 fm og geymslu í sameign er 11,1 fm.
Nánari lýsing:Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Tvö rúmgóð svefnherbergi, bæði með parketi á gólfi og góðum fataskápum. Í hjónaherbergi er þrefaldur fataskápur.
Sjónvarpshol sem býður upp á fjölbreytta notkun.
Björt stofa/borðstofa með parketi á gólfi og útgengi út á skjólgóða timburverönd með skjólveggjum til vesturs. Hægt er að ganga af veröndinni út um hlið í sameiginlegan garð þar sem m.a. eru leiktæki fyri börn.
Eldhús með flísalagt gólf, snyrtilega innréttingu, AEG bakaraofn í vinnuhæð og gott skápa- og vinnupláss.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum nánast upp í loft, innrétting með efri og neðri skáp, baðkar með sturtuaðstöðu, upphengt salerni og opnanlegur gluggi.
Sérþvottahús er
innan íbúðar.
Sameignin er mjög snyrtileg, með lyftu. Þar er góð sameiginleg hjólageymsla og gott húsfélag. Fjöldi bílastæða og gott aðgengi.
Húsið er staðsett í rólegu og fjölskylduvænu hverfi í göngufæri við leikskóla, skóla og almenningssamgöngur.
Húsið er byggt af Byggingarfélagi Gunnars og Gylfa (BYGG) árið 2002.
Nánari upplýsingar veita Jasmín Erla Ingadóttir, lfs. í síma 772-6979, og netfanginu jasmin@sunnafast.is, og Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., í síma 8633445 og netfanginu marta@sunnafast.is.