Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Vel skipulögð 3ja til 4ra herbergja íbúð á 3. hæð (efstu hæð) að Írabakka 18.
Útleiguherbergi í kjallara og
tvennar stórar svalir. Eignin er skráð 82,2 fm. samkvæmt Þjóðskrá Íslands og skiptist í hol, rúmgóða stofu, borðstofu, eldhús, 2 svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, sérgeymslu og sérherbergi í kjallara sem hefur verið hagnýtt til útleigu. Sameiginlegt þvottaherbergi og hjólageymsla í sameign. Mjög stutt er í skóla, leikskóla og Mjóddina sem hýsir alla helstu þjónustu eins og verslanir, heilsugæslu og strætósamgöngur. Einnig er stutt í Elliðarárdalinn þar sem eru fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði. Búið er að setja upp sameiginlegar
rafhleðslustöðvar á sameiginlegt bílaplan.
Frekari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali í S: 844-6516 eða ragnar@fstorg.isNÁNARI LÝSING: Á stigapalli sameignar er skápur í sameign sem tilheyrir íbúðinni.
Hol/anddyri: Frá anddyri tekur við hol sem tengir saman flest rými íbúðarinnar. H
arðparket er á gólfi.Stofa/borðstofa: Stofa og borðstofa eru samliggjandi og bjartar með harðparketi á gólfi. Stórir gluggar birta upp stofurnar. Frá borðstofu er útgengt á stórar svalir sem snúa í átt að sameiginlegum garði.
Eldhús: Eldhúsið er með ljósri eldhúsinnréttingu, búið efri- og neðri skápum, bakaraofni með helluborði, háfi, tengi fyrir uppþvottavél og stæði fyrir kæliskáp. Flísar á milli efri- og neðri skápa. Rúmgóður borðkrókur er við glugga. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi: Innan íbúðar eru tvö svefnherbergi með harðparketi á gólf
um og innbyggðum fatahirslum. Frá hjónaherbergi er útgengt á mjög stórar svalir með fallegu útsýni.Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Búið hvítri innréttingu með handlaug og speglaskápi. Salerni, sturtuklefi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Sérgeymsla í kjallara sameignar skráð 5 fm.
Sameign: Innan sameignar er sameiginlegt þvottaherbergi ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.Íbúðarherbergi í kjallara: Rúmgott herbergi er í kjallara sameignar skráð 12,8 fm. buið glugga með opnanlegu fagi. Herbergið er skráð á fasteignayfirliti sem íbúðarherbergi.
Um er að ræða mikið endurnýjaða fjölskyldueign á vinsælum stað í bökkunum í neðra Breiðholti. Grunnskóli, leikskólar og Mjóddin í göngufæri og stutt í Elliðarárdalinn þar sem eru fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði.
Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali í S: 844-6516 eða ragnar@fstorg.isFáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign (Athugið að gjaldskrár stofnana geta tekið breytingum og því neðangreint aðeins til viðmiðunar):
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.