BetriStofan fasteignasala, Borgartúni 30 kynnir land til sölu. Til sölu er 3,2 hektara land austur í Mýrdal. Landið liggur ofan við þjóðveginn og er tilvalið fyrir ferðaþjónustufyrirtæki m.a. vegna staðsetningar og umhverfis. Frá landinu liggja gönguleiðir að vestanverðu þar sem gengið er inn að botni Ystagils og horft yfir Sólheimajökul. Einnig eru gönguleiðir að austanverðu en þá er gengið yfir heiðina í austur og niður með Hólmsárgili, sem er einsök náttúruperla. Landið liggur vestan við skógræktina í Gjögrum en skógrækt þessi veitir skjól fyrir austanátt. Hólmsá rennur austan við skógræktarlandið þar sem að framanverðu er auðvelt aðgengi að Hólmsárgili en þegar gengið er inn í gilið birtist ótrúleg fegurð landsins. Landið er gyrt og liggja tvær akstursleiðir að landinu, önnur að austanverðu og hin að vestanverðu. Inni í landinu er girðing sem afmarkar fjögur eplatré. Framan við landið myndast tjörn, en hún á til að þorna. Inni í landinu eru rústir af fjárhúsi og hlöðu sem nýtur verndar sem fornmynjar. Mönnum er frjálst að gera upp rústirnar. Rústir þessar eru staðsettar í norðvestur horni landsins. Landið skiptist í vallendisfleti sem áður voru notaðir til heyöflunar (slátturs). Fyrir nánast miðju landi er mýrlendisrenningur þar sem tveir litlir lækir renna eftir. Heimild er fyrir frekari vatnsöflun ofan við og utan landsins. Að vestanverðu eru vallendismóar. Frá landinu er útsýni í austur til Sólheimabæja og Péturseyjar. Í suður er útsýni til sjávar. Til vesturs er útsýni til heiða. Í norður er útsýni að heiðarlandi sem vetir skjól. Áður fyrr var landið notað til beitar fyrir kindur sem gengu fyrir opnu húsi allt árið en kindur voru einnig hafðar í seli á árum áður. Landið er hrein náttúrperla og Sólheimaheiði er mikil náttúruparadís. Landið er séreign úr óskiptu landi Sólheimabæja.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.